EFLU-þing á Akureyri: Hvernig líður okkur í byggingum?
Málþing, Innivist
Þann 7. júní fer fram EFLU-þing á Akureyri og verður fjallað um áhrif innivistar á heilnæmi bygginga og líðan fólks. Staðreyndin er að við verjum að jafnaði 90% af tíma okkar innandyra og því skiptir miklu máli fyrir heilsu og vellíðan að innivistin sé góð.
-
EFLU-þing verður haldið í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, þann 7. júní 2018.
Innivist er samnefnari yfir marga samverkandi þætti bygginga s.s. loftgæði, efnisval, raka, hljóðvist, lýsingu og fleira sem hafa áhrif á líðan fólks. Fyrirlesarar eru allir starfsmenn EFLU og starfa við ráðgjöf á sviði innivistar. Markmið EFLU-þings er að fræða og skapa grundvöll fyrir umræðu um samfélagsleg málefni.
Fyrir hverja?
Allir sem hafa áhuga á bættri líðan og innivist í byggingum, fagaðilar eða áhugafólk, eru velkomnir á málþingið. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á vefnum fyrir 4. júní næstkomandi.
Hvar og hvenær?
EFLU-þingið er haldið í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, fimmtudaginn 7. júní frá kl. 13:00-15:30. Í lok málþings er gert ráð fyrir opnum umræðum og fyrirspurnum frá fundargestum er tekið fagnandi.
Dagskrá EFLU-þings
- 12:45 Hús opnað
- 13:00-13:30 Loftskipti og loftræsing í byggingum:
Hvað er góð innivist og hvernig má auka gæði loftræsingar í byggingum.
Óli Þór Jónsson, vélaverkfræðingur - 13:30-14:00 Getur góð lýsing skapað verðmæti fyrir fyrirtæki?
Hver er munurinn á góðri og slæmri lýsingu og hvaða áhrif hefur lýsing á fólk. Hvernig sköpum við gott vinnuumhverfi með vandaðri lýsingu?
Kristján Kristjánsson, lýsingarhönnuður - 14:00-14:15 Kaffihlé
- 14:15-14:45 Innivist, rakaskemmdir og heilsa
Hverjar eru helstu áskoranir rakaskemmda í húsum. Við hvaða aðstæður myndast mygla og hvað er hægt að gera til að draga úr áhættunni?
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur
- 14:45-15:15 Hljóðvist og áhrif á líðan
Hljóðeinangrun, góð hljóðvist og áhrif á líðan fólks. Rætt verður um opin vinnurými, kosti þess og galla og hvernig draga má úr hávaða í byggingum.
Ólafur Daníelsson, hljóðvistarsérfræðingur
- 15:15-15:30 Opnar umræður