Alda, brú yfir Fossvog og Ölfusárbrú voru meðal verkefna sem kynnt voru á Brukonferansen 2026, árlegri brúarráðstefnu norsku vegagerðarinnar. Magnús Arason byggingarverkfræðingur hjá EFLU kynnti hönnun á og framkvæmdir við Öldu, brú yfir Fossvog ásamt Keith Brownlie frá BEAM Architects.

Magnús Arason byggingarverkfræðingur hjá EFLU
Brukonferansen var haldin í Osló í byrjun nóvember en ráðstefnan er mikilvægur faglegur vettvangur norska samgöngugeirans. Á ráðstefnunni koma saman ráðgjafar, verktakar og verkkaupar til að miðla reynslu og þekkingu og kynna áhugaverð brúarverkefni á ólíkum stigum, allt frá áætlanagerð og hönnun til framkvæmda, reksturs og viðhalds.
Þetta árið var töluverður áhugi á íslenskum brúarframkvæmdum en Magnús Arason sérfræðingur EFLU og Keith Brownlie frá BEAM Architects fengu boð um að kynna Öldu, brú yfir Fossvog. EFLA leiðir þverfaglegt hönnunarteymi í verkefninu og var hönnun brúarinnar unnin í nánu samstarfi við BEAM Architects.
Ölfusárbrú var einnig meðal verkefna sem kynnt voru á ráðstefnunni, en EFLA annaðist forhönnun brúarinnar fyrir Vegagerðina.
Þátttaka á Brukonferansen gefur íslenskum sérfræðingum tækifæri til að deila reynslu úr verkefnum og taka þátt í faglegu samtali við fjölbreyttan hóp sérfræðinga frá Norðurlöndunum. Slík þekkingarmiðlun styður við áframhaldandi þróun og samstarf innan norræna brúar- og samgöngugeirans.
1 / 4Alda, brú yfir Fossvog
2 / 4Alda, brú yfir Fossvog
3 / 4Ölfusárbrú
4 / 4Ölfusárbrú
