Beint í efni
Teikning af Fossvogsbrú milli Reykjavíkur og Kópavogs

Alda, brú yfir Fossvog

HöfuðborgarsvæðiðSamgöngur og innviðir

Fossvogsbrú myndar mikilvæga tengingu milli Reykjavíkur og Kópavogs fyrir Borgarlínuna, gangandi og hjólandi vegfarendur. Mannvirkið styttir vegalengdir í höfuðborginni, hvetur til vistvænna samgangna og er áberandi kennileiti fyrir svæðið.

Viðskiptavinur
  • Betri samgöngur ohf.
  • Vegagerðin
  • Reykjavíkurborg
  • Kópavogsbær
  • Veitur ohf
  • Míla
  • Ljósleiðarinn
Samstarfsaðilar
  • BEAM Architects
  • EFLA KSLD
  • Svend Ole Hansen ApS

Lykiltenging á höfuðborgarsvæðinu

Alda, brú yfir Fossvog, gegnir lykilhlutverki fyrir Borgarlínuna og styður framtíðarsýn um skilvirkari og sjálfbærari samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Með tengingu yfir Fossvog styttast leiðir milli Reykjavíkur og Kópavogs verulega sem eykur aðgengi að atvinnu, þjónustu og útivist fyrir íbúa sveitafélaganna.

Borgarlínan fer um miðju brúarinnar en gangandi og hjólandi vegfarendur hafa aðskildar leiðir sitthvorum megin. Hönnun Öldu miðar að því að virða sérkenni svæðisins og skapa mannvirki sem fellur vel að landslaginu og umhverfinu öllu, um leið og hún uppfyllir kröfur um öryggi og sjálfbærni í samgöngum.

Teikning af Öldu, brú yfir Fossvog

Alda, brú yfir Fossvog Lykiltenging á höfuðborgarsvæðinu

Hlutverk EFLU

EFLA leiddi þverfaglegt hönnunarteymi verkefnisins og bar ábyrgð á verkefnastjórn, samræmingu fagsviða, for- og verkhönnun og gerð útboðsgagna. Hönnun brúarinnar var unnin í nánu samstarfi við BEAM Architects og náði hönnunarvinnan jafnframt til aðliggjandi Borgarlínunnar, göngu- og hjólastíga beggja vegna Fossvogs, áningarstaða, landmótunar og veitukerfa.

Alda er viðamikið innviðaverkefni og er dæmi um nána samþættingu ólíkra fagsviða, þar sem samgöngur, mannvirki, landslag og veitukerfi fléttast saman í eina heildræna og virðisaukandi innviði.

Sérfræðingar EFLU lögðu fram fjölbreytta þekkingu til verkefnisins, en helstu þjónustuþættir voru:

  • Verkefnastjórn og samræming faggreina
  • Brúarhönnun og burðarvirki
  • Borgarlína, götur og stígar
  • Jarðtækni, landfyllingar og sjóvarnir
  • Landslagsarkitektúr og almenningsrými
  • Rafkerfi og lýsing
  • Fráveitu- og ofanvatnskerfi
  • Umferðargreiningar og samgöngumat
  • BIM og líkanadrifin hönnun
  • Vind-, straum- og sveiflugreiningar
  • Vistferils- og kolefnissporsgreiningar

Staðsetning brúarinnar í Fossvogi er kjörin fyrir samgöngur en fól jafnframt í sér margvígslegar áskoranir við hönnun:

Áskoranir við hönnun og útfærslu

Strangar hæðartakmarkanir

Nálægðin við Reykjavíkurflugvöll krefst þess að hæð brúarinnar fari ekki yfir ákveðin takmörk. Þetta hafði úrslitaáhrif á val á brúargerð og allar hönnunarútfærslur burðarvirkisins.

Krefjandi sjávarumhverfi

Mannvirki í sjó kallar á sérstakar lausnir vegna tæringarálags og annarra umhverfisþátta sem hafa áhrif á endingartíma mannvirkisins.

Kröfur um ásýnd og samspil við umhverfið

Fossvogurinn er fjölsótt útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu. Gæta þurfti að því að brúin félli vel að umhverfinu bæði hvað ásýnd og landslagshönnun varðar, enda nýtur brúin mikillar nálægðar við vinsælar göngu- og hjólaleiðir, Ylströndina og íbúabyggð í Kársnesi sem hefur beint útsýni yfir voginn.

Aðferðarfræði og greiningar

Hönnun Öldu byggir á ítarlegum greiningum auk þess sem hönnunarteymið studdist við BIM-aðferðarfræði (Building Information Modelling). Með því að vinna alla hönnun í miðlægum upplýsingalíkönum tókst að samræma innviði ólíkra fagsviða á skilvirkan hátt og tryggja gæði vinnuferlisins frá hugmyndastigi að framkvæmd.

Til að stuðla að öryggi, hagkvæmni og jákvæðri upplifun notenda framkvæmdu sérfræðingar EFLU jafnframt fjölda sérhæfðra greininga sem mótuðu hönnun mannvirkisins. Þar á meðal voru:

Niðurstöður greininganna höfðu áhrif á endanlega útfærslu mannvirkisins og studdu markmið verkefnisins um sjálfbærni og gæði.

Teikning af Öldu brú yfir Fossvog að næturlagi

Hönnun sem kallast á við umhverfið

Alda er meira en samgöngumannvirki. Brúin tengir vissulega saman sveitarfélög og styttir leiðir en um leið skapar hún nýtt almenningsrými í borgarlandslaginu. Þar bjóða útsýnispallar og áningarstaðir upp á einstaka upplifun þar sem vegfarendur geta staldrað við og notið nálægðarinnar við hafið og náttúruna.

Hugmyndafræðin að baki hönnunar brúarinnar vísar í umhverfi hennar:

  • Skírskotun í öldur hafsins Brúin þverar Fossvog í mjúkum boga en burðarkantarnir á hliðunum bylgjast upp og niður meðfram brúargólfinu. Þetta bylgjusamspil myndar sterka tengingu við sjávarölduna í Fossvogi og Skerjafirði. Vel fer á því að sú skírskotun færi brúnni heiti sitt: Alda.
  • Sveigt hjá álfasteinum Úr sögum er þekkt að verði álfasteinn á vegi manns verði að sveigja af leið. Á brúnni eru þrír áningarstaðir sem bera því heitið Álfasteinar, en brúarvegurinn sveigir mjúklega og af hógværð framhjá þeim.

Sjálfbærni að leiðarljósi

Sjálfbærni hefur verið höfð að leiðarljósi við hönnun Öldu allt frá upphafi. Mikil áhersla er lögð á samspil mannvirkisins við náttúru og umhverfi, auk þess sem mikilvægar göngu- og hjólaleiðir á svæðinu haldast opnar og aðgengilegar á framkvæmdartíma.

Í hönnunarferlinu var kolefnisspor hverrar verklausnar greint og vaktað markvisst. Þessar greiningar hafa stutt við upplýsta ákvarðanatöku sérfræðinga og þannig hjálpað við að draga markvisst úr umhverfisáhrifum. Þá hafa allar aðrar greiningar sem unnar voru fyrir verkefnið, hvort sem þær lutu að vistkerfum, vindafari, straumum, hljóðvist eða útivist, verið rýndar sérstaklega með tilliti til sjálfbærni- og umhverfisþátta.

Myndefni úr hönnun

Að neðan má sjá myndefni sem unnið hefur verið gegnum hönnunarferil brúarinnar, allt frá samkeppni að útboðshönnun. Myndirnar gefa góða hugmynd um hvernig brúin í heild og einstakir hlutar hennar munu falla að umhverfinu í Fossvogi og verða hluti af almenningsrýminu.

Fylgist með framkvæmdum

Hægt er að fylgjast nánar með þróun framkvæmda á vef Borgarlínunnar

Hafðu samband

EFLA | Alda, brú yfir Fossvog