Beint í efni

Vindafar og -greiningar

Vindgreiningarteymi EFLU hefur víðtæka reynslu í greiningum á veðurgögnum og hermunum (e. simulations) sem gerir teyminu kleift að skila sérsniðnum lausnum að þörfum viðskiptavina.

Blár himinn og skýjafar

Sérfræðiþekking á vindafari

EFLA sérhæfir sig í greiningum á vindafari og veitir alhliða þjónustu á því sviði. Sérfræðiteymið notast við mæligögn, gögn úr háupplausnar veðurlíkönum, vindflæðislíkön, tölfræðilegar aðferðir og gervigreind til að greina veðurfar. Þannig er hægt að skilja þróun og mynstur í veðurfari og spá fyrir um tíðni sjaldgæfra atvika út frá samspili veðurfars og flókins landslags og umhverfis.

Vindgreiningarteymið notast einnig við tölulegar straumfræðihermanir (e. CFD – Computational Fluid Dynamics) til að reikna staðbundið vindflæði á þrívíðu reiknineti í kringum landslag og mannvirki. Þannig fást nákvæmar upplýsingar um m.a. vindhraða, vindátt, hitastig og þrýsting á svæðinu fyrir mismunandi forsendur. Niðurstöðurnar nýtast til að mynda við hönnun á mannvirkjum, skipulagi og samgöngum, við greiningar á dreifingu loftborinnar mengunar frá umferð eða iðnaði og við rekstrarlegar ákvarðanir.

Sérsniðnar lausnir

Sérþekking vindgreiningarteymis EFLU nær yfir breitt svið viðfangsefna. Teymið hefur m.a. unnið að kortlagningu vindafars fyrir valkostagreiningar, hagræðingu í hönnun mannvirkja eða samgönguinnviða til að stuðla að öruggri og góðri vindvist í borgarrýmum, hönnun náttúrulegrar loftræsingar, loftgæðamati þar sem dreifing á loftborinni mengun er hermd og rekstraröryggi.

Innan EFLU er að finna sérfræðinga á fjölmörgum sviðum, s.s. skipulagsmálum, byggina- og veghönnun, hafnarverkfræði, umhverfisverkfræði, raflínuhönnun o.fl. sem vinna náið með vindgreiningarteyminu að afmörkun, skipulagningu og túlkun vindgreininga.

Meðal þjónustusviða eru:

  • Greining á vindafari út frá langtíma veðurmælingum (tíðni vindátta, -hraða og -hviða). Vindrós útbúin.
  • Greining á vindafari út frá mælingum og reiknilíkönum sem taka tillit til landslags og umhverfis.
  • Greining á staðbundnu vind- og hitaflæði í kringum byggingar og önnur mannvirki.
  • Útreikningar á endurkomutíma aftakaveðurs eða vissra veðuraðstæðna.
  • Mat á líkum á vissum veðuratburðum yfir árið, t.a.m. veðuraðstæðna sem hafa áhrif á rekstur samgönguinnviða eða framleiðslu.
  • Greining á vindþægindum (e. pedestrian wind comfort) út frá vindgögnum, hermunum og vindþæginda viðmiðum. Hægt er að skoða árleg eða árstíðarbundin áhrif vinds á notendur og leggja mat á öryggi og gæði útisvæða.
  • Kortlagning svæðis út frá virkni/notkunargildi.
  • Greining á öryggi vegfarenda m.t.t. staðsetningar á inngöngum og göngustígum.
  • Tillögur að úrbótum og mótvægisaðgerðum við núverandi byggingar eða skipulög.
  • Samanburður á vindafari fyrir núverandi aðstæður og með tilkomu nýrrar byggðar eða bygginga.
  • Hönnunaraðstoð í vega- og mannvirkjagerð varðandi snjósöfnunarsvæði.
  • Hermun á skilvirkni náttúrulegrar loftræsingar.
  • Útreikningar á vindflauti frá handriðum.

Þekking á vindafari og vindvist í borgarumhverfi

Með réttu verkfærunum og sérfræðiþekkingu er hægt að sérsníða lausnir að þörfum verkefna og viðskiptavina. Greiningar á vindafari á skipulags- eða hönnunarstigi geta aukið gæði og virði í margvíslegum verkefnum. Eins er hægt að koma í veg fyrir ýmiskonar vandamál sem geta verið kostnaðarsöm eða haft neikvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Áreiðanlegt mat á vinda- og veðurfari getur verið ómissandi í frumhönnun og valkostagreiningum á byggingum, samgöngu- og orkuinnviðum, sem og í rekstrarlegum ákvörðunum. Einnig er það grunnforsenda fyrir aðrar verkfræðigreiningar, t.d. á dreifingu á loftborinni mengun eða lykt frá umferð, iðnaði eða landbúnaði.

Hermun á staðbundnu vindafari á smærri skala eykur gæði í hönnun mannvirkja og skipulags. Þannig er hægt að skapa betri vindskilyrði umhverfis byggingar, koma í veg fyrir óæskilega eða hættulega vindstrengi, tryggja öryggi og notkun innganga og hanna skjólsæl útisvæði.

Hafa samband