Straumfræðigreiningar
Straumfræðisérfræðingar EFLU búa yfir þekkingu og reynslu af notkun öflugra reiknilíkana til greiningar á flæði lofts og vökva, þrýstingi og hita- og mengunardreifingar. Niðurstöður má nota til hagræðingar á hönnun og við ákvarðanatöku.

Sérhæfing
Notkun tölulegra straumfræðigreininga (e. Computation Fluid Dynamics, CFD) við hönnun á vörum eða mannvirkjum er sífellt að aukast. Framþróun í tölvubúnaði hefur opnað á nýja möguleika og í dag er hægt að herma flókið flæði gass og vökva og varmaflutning með nákvæmari hætti en áður.
Hermanir á hönnunarstigi er áhrifarík leið til að styðja við bestun. Með hermununum er hægt að bera kennsl á svæði þar sem flæði er óstöðugt eða staðnað, greina varmabrýr eða önnur vandamálasvæði. Eins bjóða hermanir upp á þann möguleika að prófa og bera saman ólíkar lausnir á öruggan og skilvirkan hátt, sem styður við ákvarðanatöku og dregur úr kostnaði.
Fjölbreytt verkefni
EFLA býður upp á greiningar, sérsniðnar að þörfum viðskiptavina, sem styðja við ákvarðanatöku, hönnun og öryggi í verkefnum. Sérþekking á straumfræði og CFD greiningum nýtist í margvíslegum verkefnum m.a. í hönnun á kælikerfum fyrir ýmsan búnað, greiningum á hitadreifingu og stöðnuðum svæðum í baðlónum, að tryggja skilvirka loftun og þurrkun í vinnslurýmum, reikninga á kröftum á lagnir og flæði í veitukerfi, aðherma niðurstreymi frá þyrlu og loftskipti í bílakjallara svo nokkur dæmi séu nefnd.
Straumfræðiteymið vinnur náið með öðrum sviðum innan EFLU til að tryggja alhliða þjónustu við viðskiptavini.
Meðal þjónustusviða eru:
- Greiningar á vatnsflæði í baðlónum ásamt hitastigsdreifingu. Tryggja þægilega veru og hreina laug.
- Greiningar á skilvirkni kælikerfa, hvort sem um er að ræða loft- eða vökvakælingu.
- Greiningar á flæði í lögnum, t.d. í loftræsi- og skólpkerfum. Tryggja jafna dreifingu og koma í veg fyrir óæskilegar aðstæður t.a.m. púlsandi flæði.
- Hermanir á loft- og hitastigsdreifingu í skrifstofu-, vinnslu- eða almennings rýmum. Hægt að meta gæði innivistar út frá lofthraða, hitastigi, rakastigi og geislun. Einnig er hægt að skoða loftgæði með tilliti til dreifingar og styrks á mengandi efnum.
- Straumfræðilegir útreikningar fyrir vatnsvegi t.a.m. vatnsaflsvirkjanir.
- Hermun á stöðnun eða aldri lofts (e. age of air) til að reikna út loftskiptatíma innan rýmis. Nýtist m.a. fyrir reykræsingar.
- Áhættumat vegna öryggis vegfarenda eða notenda við sérstakar aðstæður, t.d. vegna niðurstreymis frá þyrlu.
Hagkvæm og skilvirk lausn
Straumfræðigreiningar EFLU nýtast í margvíslegum verkefnum. Þær koma að góðum notum á hönnunar- og tilraunarstigi en einnig til að greina vandamál og útfæra lausn þeirra.