Námskeið um kolefnisspor bygginga verður haldið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands þriðjudaginn 21. apríl. Kennarar á námskeiðinu eru Ása Rut Benediktsdóttir og Alexandra Kjeld, sérfræðingar í umhverfismálum og vottunum hjá EFLU. Þetta er í annað sinn sem slíkt námskeið er haldið og er nú haldið í formi fjarnámskeiðs sem er verklegt að mestum hluta.
Áratuga reynsla
EFLA hefur í áratugi sinnt ráðgjöf í sjálfbærnimálum fyrir opinbera aðila og fyrirtæki og jafnframt tekið virkan þátt í nýsköpun og rannsóknum, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. „Við höfum verið í fararbroddi í vistferilsgreiningum og kolefnissporsútreikningum á Íslandi í meira en 20 ár og höfum unnið vel á annað hundrað greininga á sviði bygginga og samgöngumannvirkja, úrgangsmála, orkuvinnslu, þjónustu og iðnaðar,“ segir Alexandra Kjeld.
Alexandra og Ása Rut búa yfir áralangri reynslu af vistferilsgreiningum í byggingar-, samgöngu- og orkugeiranum, auk þess að hafa mikla reynslu af greiningum og notkun mismunandi hugbúnaðar við mat á kolefnisspori bygginga. „Útreikningar á kolefnisspori bygginga urðu skyldubundnir í fyrra og því er mikilvægt að byggingaraðilar og hönnuðir þekki þessar reglur þegar sótt er um byggingarleyfi og viti líka hvernig hægt er að vinna áfram með niðurstöðurnar,“ bætir Alexandra við.
Breytt byggingarreglugerð
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja afla sér þekkingar og hæfni til að meta kolefnisspor bygginga í samræmi við breytta byggingarreglugerð sem tók gildi 1. september 2025. Samkvæmt nýju reglunum þarf að meta kolefnisspor bygginga við útgáfu byggingarleyfis. Um þriðjungur losunar gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu er rakinn til byggingargeirans, sem undirstrikar mikilvægi þess að auka þekkingu á þessum málum fyrir framtíðarþróun greinarinnar.
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í vistferilsgreiningu (LCA, Life Cycle Assessment), sem er lykilaðferð við mat á kolefnisspori bygginga. Farið verður yfir aðferðafræði vistferilsgreininga, hvaða gögn þurfa að liggja fyrir og hvernig skal útbúa skilagögn sem eru tilbúin til innmötunar í skilagátt HMS. Einnig verður fjallað um hvaða hugbúnaður er helst notaður og hvaða leiðir eru til að draga úr kolefnisspori mannvirkja með upplýstu vali á efnum og lausnum. Þá verður farið yfir vægi mismunandi byggingarhluta og efna í heildaráhrifum bygginga.
Námskeiðið hentar öllum
Námskeiðið er hagnýtt og byggir á raunverulegum dæmum. Þátttakendur fá tækifæri til að vinna þau skref sem þarf að kunna skil á til að setja upp einfalda vistferilsgreiningu fyrir byggingu, undir leiðsögn reyndra sérfræðinga. Námskeiðið hentar öllum sem starfa í byggingariðnaði, svo sem arkitektum, verktökum, ráðgjöfum, verkfræðingum og öðrum sem koma að hönnun og byggingu mannvirkja.
Engar forkröfur eru gerðar fyrir þátttöku, en mælt er með að þátttakendur kynni sér nýjar reglur um vistferilsgreiningu á heimasíðu HMS (hms.is/lifsferilsgreining). Námskeiðið er í formi fjarnámskeiðs og hentar öllum óháð búsetu, og er kjörið fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína og þróa hagnýta færni í vistferilsgreiningum og útreikningum á kolefnisspori, um leið og þeir undirbúa sig fyrir breyttar kröfur í byggingargeiranum.
