Sjálfbærni í verki

Hvort sem markmiðið er að draga úr losun, bæta nýtingu auðlinda eða uppfylla sívaxandi kröfur um sjálfbærni, aðstoðar EFLA viðskiptavini við að nýta gögn á markvissan hátt. Við hjálpum við að setja skýr og mælanleg markmið, forgangsraða aðgerðum og fylgja þeim eftir til að tryggja raunverulegan árangur.

Loftlagsmál og kolefnisspor
Fyrirtæki þurfa í auknum mæli að sýna fram á hvernig þau draga úr loftslagsáhrifum og uppfylla kröfur um sjálfbærni. Áskorunin felst oft í að greina hvar mesta losunin liggur og hvaða aðgerðir hafa mest áhrif.
EFLA vinnur með fyrirtækjum í að meta kolefnisspor sitt, greina stærstu losunaruppsprettur og forgangsraða aðgerðum sem skila raunverulegum árangri. Þannig verða gögn að öflugum grunni fyrir upplýstar ákvarðanir, markvissa stefnumótun og mælanlegar umbætur.
Vistferils- og líftímakostnaðargreiningar
Besta lausnin í dag er ekki endilega besta lausnin til framtíðar. EFLA aðstoðar viðskiptavini við að bera saman valkosti með því að greina bæði umhverfisáhrif og kostnað yfir allan líftíma verkefna, mannvirkja og vara. Með vistferilsgreiningum og líftímakostnaðargreiningum fæst heildstæð mynd sem styður upplýsta ákvarðanatöku, dregur úr áhættu og stuðlar að hagkvæmari og sjálfbærari lausnum.
Nánari upplýsingar um vistferils- og líftímakostnaðargreiningar
Úrgangur og endurvinnsla
Fyrirtæki og sveitarfélög standa frammi fyrir auknum kostnaði og strangari kröfum um flokkun, endurvinnslu og ábyrga meðhöndlun úrgangs. EFLA styður viðskiptavini við að kortleggja úrgangsstrauma, greina tækifæri til að draga úr úrgangsmagni, bæta nýtingu auðlinda og uppfylla lagalegar kröfur sem leiðir til hagkvæmari reksturs, minni umhverfisáhrifa og betri nýting verðmætra auðlinda.
Innleiðing hringrásarhagkerfis
Í eðli sínu er úrgangur auðlind. EFLA vinnur með viðskiptavinum við að innleiða lausnir með hringrásarhugsun að leiðarljósi þar sem dregið er úr sóun, endurnýting aukin og auðlindir nýttar betur. Meiri verðmæti eru sköpuð úr þeim auðlindum sem þegar eru til staðar sem leiðir til aukinnar hagkvæmni, minni umhverfisáhrifa og meiri verðmætasköpunar.
Upplýsingagjöf um sjálfbærni fyrirtækja
Fyrirtæki standa frammi fyrir auknum kröfum um upplýsingagjöf og gagnsæi í sjálfbærnimálum. EFLA aðstoðar viðskiptavini við að safna, greina og miðla sjálfbærniupplýsingum sem uppfylla lagalegar kröfur, mæta væntingum hagaðila og sýna fram á raunverulegan árangur í rekstri.
Nánari upplýsingar um upplýsingagjöf um sjálfbærni fyrirtækja
Stefnumótun, stjórnkerfi og vottanir
Virk stjórnkerfi skapa raunverulegan ávinning í rekstri. EFLA aðstoðar fyrirtæki við að innleiða stjórnkerfi sem móta skýra stefnur, skilgreina ferla, draga úr áhættu og skapa traustan grunn fyrir upplýsta ákvarðanatöku. Markmiðið er ekki að búa til meira skrifræði heldur að þróa og innleiða stjórnkerfi sem nýtast í daglegum rekstri, auka skilvirkni og leggja grunn að stöðugum umbótum, betri árangri og sjálfbærum vexti.
Sérfræðingar EFLU í sjálfbærnimálum








