Beint í efni
Loftmynd af gatnamótum og tveimur bílum

Frumdrög og val­kosta­grein­ing Mikla­brautar

ReykjavíkSamgöngur og innviðir

EFLA vann þverfagleg frumdrög og valkostagreiningu fyrir Miklubraut í Reykjavík þar sem fjórar stokka- og jarðgangalausnir voru þróaðar og bornar saman til að skapa faglegan grunn fyrir framtíðaruppbyggingu svæðisins.

Viðskiptavinur
  • Vegagerðin
Hönnunarferli
  • 2022 - 2024
Þjónustuþættir

Ný sýn á Miklubraut

Miklabraut er ein af umferðarþyngstu götum landsins og liggur um þéttbýlt svæði þar sem takmarkað rými er til breikkunar. Á þeim kafla sem var til skoðunar þverar hún Kringlumýrarbraut, sem einnig ber mikla umferð. Álag á vegakerfið veldur umferðartöfum og mengun og ekki er talið raunhæft að bæta við akbraut fyrir Borgarlínu nema færa stóran hluta núverandi bílaumferðar undir yfirborð.

Verkefnið fólst í að kanna með heildstæðum hætti hvort stokk- eða jarðgangalausnir gætu mætt þessari þörf. Á endanum voru tvær stokklausnir, S1 og S2, um 1,85 km langar, og tvær jarðgangalausnir, J2d og J2e, um 2,8 km langar, þróaðar frekar og bornar saman.

Fjórar lausnir bornar saman

EFLA sá um þverfaglega frumdragavinnu þar sem valkostirnir fjórir voru mótaðir, þróaðir og bornir saman. Vinnan náði meðal annars til hönnunarforsendna, umferðargreininga og umferðarreikninga, veghönnunar, jarðtækni og mannvirkjahönnunar, veitukerfa, hljóðvistar og loftgæða, umferðaröryggis, framkvæmdaráfanga, kostnaðaráætlana og félagshagfræðilegrar greiningar.

Einnig voru metin áhrif lausnanna á almenningssamgöngur og Borgarlínu, gangandi og hjólandi vegfarendur og borgarumhverfið. Verkefnið tók jafnframt til hönnunar mögulegra jarðganga í þéttbýli og þurfti samanburðurinn að taka mið af þröngu borgarumhverfi, mikilli umferð og umfangsmiklum veitukerfum.

Faglegur grunnur fyrir næstu ákvarðanir

Arðsemi valkostanna var metin sambærilegur en jarðgangalausnirnar voru almennt taldar hagstæðari þegar horft var til framkvæmdarinnar í heild. Stokklausnirnar kölluðu á mikið rask á framkvæmdatíma, bæði fyrir umferð og veitulagnir.

Loftgæði, hljóðvist, kolefnisspor, landnotkun og áhrif á almenningssamgöngur, göngu og hjólreiðar voru einnig borin saman. Ekki kom fram mikill munur milli lausnanna út frá þeim þáttum.

Greiningin skapar faglegan grunn fyrir áframhaldandi ákvarðanir um Miklubraut og varpar ljósi á raunhæfar leiðir til að þróa samgönguæðina til framtíðar.

Umhverfis- og samfélagsáhrif hluti af heildarmyndinni

Við samanburð valkostanna voru meðal annars metin loftgæði, hljóðvist, kolefnisspor, landnotkun og áhrif á almenningssamgöngur, göngu og hjólreiðar. Ekki kom fram mikill munur milli lausnanna út frá þessum þáttum.

Framtíðarlausn fyrir Miklubraut þarf að taka mið af mörgum samverkandi þáttum, allt frá umferð og tæknilegri framkvæmanleika til umhverfis og borgarumhverfis. Þverfagleg nálgun verkefnisins gerir kleift að sjá þessa þætti í samhengi og skapa traustan grunn fyrir ákvarðanir um næstu skref.

Viltu vita meira?