Hálendi með fjall í baksýn.

Rammaskipulag fyrir Suðurhálendið

AfrétturSkipulagsmál

Rammaskipulagið er stefnumörkun í skipulags- og byggingarmálum og tekur einkum til ferðaþjónustu og samgangna á afréttum sveitarfélaganna þriggja; Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Skaftárhrepps.

Viðskiptavinur
  • Suðurhálendið
Verktími
  • 2012 - 2014
Þjónustuþættir
  • Deiliskipulag
  • Ferðamannastaðir
  • Fjarskipti
  • Göngu- og hjólastígar
  • Kort og kortagrunnar
  • Rammaskipulag
  • Skipulagsmál
  • Vegir og götur

Um hvað snýst verkefnið

Leiðarljós við vinnuna var að bæta þjónustu við ferðamenn en um leið að tryggja að viðkvæm náttúra beri ekki skaða af og að tekjur starfseminnar skili sér á svæðinu.

Í verkefninu voru settar fram tillögur um flokkun vega, uppbyggingu þeirra og endurbætur. Helstu göngu- og reiðleiðir voru kortlagðar og bent á nýjar og áhugaverðar leiðir til að dreifa ferðamönnum betur um svæðið. Hvað skála varðar voru núverandi staðir metnir m.t.t. þess hvort vænlegt væri að efla starfsemi þeirra eða hvort draga þyrfti úr álagi. Jafnframt voru metnir möguleikar og þörf fyrir nýja skála.

Umhverfismál

Í vinnunni var leitast við að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og taka tillit til umhverfissjónarmiða, m.a. til að koma í veg fyrir umhverfisspjöll og ofnýtingu. Metin voru líkeg áhrif af mismunandi útfærslum og reynt að velja þær sem minnst/jákvæðust áhrif höfðu á umhverfisþætti.

Hlutverk EFLU

  • Ráðgjafi verkkaupa
  • Umsjón með tillögugerð ásamt vinnuhópi sveitarfélaganna
  • Úrvinnsla og framsetning korta og greinargerðar
  • Mat á líklegum áhrifum þeirra framkvæmda sem talið var að gætu haft umtalsverð áhrif á umhverfið. Unnið með vinnuhópi sveitarfélaganna

Ávinningur verkefnis

Með verkefninu varð til samræmd stefna og skilmálar varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu. Stefnan nýtist sem forsendur við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélaganna.

Viltu vita meira?