EFLA verður á Framadögum í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 22. janúar. Þar hittast fyrirtæki og nemendur til að skapa tengsl, miðla reynslu og opna dyr að nýjum tækifærum.
Framadagar eru árlegur vettvangur þar sem ungt fólk fær að kynnast fyrirtækjum, starfsumhverfi og velta fyrir sér möguleikum framtíðarinnar. Viðburðurinn er einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki til að kynnast næstu kynslóð sérfræðinga, kynna sumarstörfin hjá EFLU, deila reynslu af fjölbreyttum verkefnum og sýna hvernig daglegt starf lítur út í raun og veru.
Starfsfólk EFLU á staðnum til að deila reynslu
Kynningarbás EFLU verður á fyrstu hæð, B-3, þar sem starfsfólk fyrirtækisins tekur á móti gestum frá kl. 10:00–14:00. Þar gefst gestum kostur á að kynnast bakgrunni starfsmanna, fá innsýn í helstu verkefni EFLU og spyrja spurninga um allt frá tæknilegum lausnum til vinnumenningar og starfsþróunar.
Fulltrúar frá Orkusviði, Samfélagssviði, Byggingasviði og Iðnaðarsviði verða á staðnum, auk starfsfólks frá mannauðssviði sem svarar spurningum um umsóknarferli, sumarstörf og daglegt starf hjá EFLU.
EFLA tekur einnig þátt í örstarfsviðtölum frá kl. 10:30–11:30. Þar fá nemendur að prófa sig áfram í viðtalsaðstæðum, kynnast ráðningarferli fyrirtækisins og fá hagnýt ráð sem nýtast í framtíðinni. Þetta er kjörið tækifæri til að stíga fyrstu skrefin inn í atvinnulífið í öruggu og uppbyggilegu umhverfi.
Með þátttöku á Framadögum vill EFLA bæði kynna fjölbreytta starfsemi fyrirtækisins og vekja athygli á sumarstörfum fyrir háskólanema í verkfræði og tengdum greinum. Umsóknarfrestur fyrir sumarstörf rennur út sunnudaginn 8. febrúar og nánari upplýsingar má finna á vef EFLU.
Við hlökkum til að sjá þig á Framadögum.
