Í lok árs er við hæfi að líta yfir það sem við gerðum síðustu misseri. Hjá fyrirtæki eins og EFLU eru margvísleg viðfangsefni á hverju ári og ætlum við að reyna að gera grein fyrir þeim í þessum annál.
Við upphaf árs lögðum við áherslu á frásagnir af verkefnum sem sérfræðingar EFLU komu að. Í kjölfarið tóku við viðburðir sem einkenndust einkum af því að kynna fyrirtækið og starfsemi þess fyrir háskóla-, framhaldsskóla- og grunnskólanemendum. Heilt yfir var umfjöllun um lausnir sérfræðinga EFLU sem fyrr fyrirferðamest enda af nægu að taka.
Orkuverkefni í janúar
Í janúar vöktu sérfræðingar EFLU athygli á viðkvæmni orkukerfisins í skýrslu um þjóðhagslegan kostnað vegna rafmagnstruflana í dreifi- og flutningskerfi raforku sem unnin var fyrir starfshóp um rekstrartruflanir. Skýrslan sýndi að fyrirvaralausar raforkutruflanir geta kostað þjóðarbúið milljarða. Á sama tíma var rætt um olíunotkun sveitarfélaga og hvernig hraða mætti orkuskiptum í dreifbýli án þess að skerða þjónustu. Loks var sagt frá spennandi samstarfi við TDK þar sem sérfræðingar EFLU leiddu nýtingu glatvarma, en með verkefninu verður hægt að umbreyta orku sem áður fór til spillis í verðmæta auðlind.

Framtíðarstarfsfólk í febrúar
Í febrúar tók EFLA virkan þátt á Framadögum 2025, þar sem fyrirtækið kynnti starfsemi sína og sumarstörf fyrir nemendum í verkfræði og tæknigreinum. EFLA bauð einnig tæknifræðinemum á Akureyri í heimsókn á svæðisskrifstofu okkar á Norðurlandi, þar sem nemendur fengu innsýn í verkefni fyrirtækisins og vinnustaðinn. Þá voru sérfræðingar EFLU með námskeið um kolefnisspor bygginga hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Einnig var tekin í notkun ný kortavefsjá í Árborg sem er hluti af Gagnalandi EFLU. Kortasjáin byggir á gagnvirkri gagnavinnslu og stuðlar að sjálfbærri og betri ákvarðanatöku sveitarfélaga. Loks hélt Brunatæknifélag Íslands fund hjá EFLU þar sem fjallað var um brunavarnir.
EFLA hélt áfram að styrkja stöðu sína á alþjóðavettvangi með verkefnum í Póllandi, þar sem sérfræðingar fyrirtækisins gegna lykilhlutverki í hönnun háspennulína og tengivirkja sem styðja orkuskipti og samþættingu endurnýjanlegra orkugjafa.

Fundur hjá EFLU Fjallað var um brunavarnir á fundi Brunatæknifélags Íslands í höfuðstöðvum EFLU.
Verkefni, verðlaun og messa í mars
Í mars stóð EFLA uppi sem sigurvegari í Lífshlaupinu 2025, enda starfsfólk öflugt að hreyfa sig á margvíslegan hátt í þágu heilsu og vellíðunar. Þá var haldin vinnustofa um þróunaráætlun fyrir Hringrásargarð og unnið að verkefnum sem skapa verðmæti úr íslenskum skógum. Loks vakti EFLA athygli með umfjöllun um mikilvægi vistferilsgreiningar mannvirkja.
EFLA kom að hönnun og ráðgjöf við byggingu nýs Landsbanka en verkefnið hlaut Steinsteypuverðlaunin 2025. Ný og endurbætt Sprungusjá var kynnt með nýrri vefsjá, Kort.is, sem gerir skipulag og gagnavinnslu aðgengilegra en áður. Með nýrri Sprungusjá er hægt að auka öryggi og nákvæmni í jarðfræðigreiningum.
Sérfræðingar EFLU tóku þátt í Sensa-deginum, þar sem lausnir í stafrænum umbreytingum voru kynntar, og mættu auk þess á Starfamessu á Akureyri til að hitta framtíðarstarfsfólk greinarinnar.
Eins og sjá má eru viðfangsefni EFLU fjölbreytt og margslungin, en í næsta hluta segjum við frá því sem gerðist í apríl, maí og júní á árinu sem er að líða.

Akureyri Starfsfólk EFLU á Starfamessu á Akureyri.
