Komdu í heimsókn á Verk og vit
EFLA tekur þátt í 20 ára afmælissýningu Verk og vit í Laugardalshöll dagana 19. - 22. mars. Sýningin er stærsti vettvangur landsins fyrir mannvirkjagerð, byggingariðnað og skipulagsmál. Við bjóðum fagfólk, almenning og fjölskyldufólk velkomið í heimsókn á básinn okkar til þess að eiga samtal við sérfræðingana okkar, kynnast verkefnum og móta eigið draumalandslag með hönnnarteyminu ÞYKJÓ.

Með bás EFLU á Verk og vit þetta árið er hugmyndin að gefa gestum nasaþefinn af því hvernig vinnustaður EFLA er. Þar munu sérfræðingar okkar kynna áhugaverðar þjónustur fyrir framtíð byggingariðnaðar, skipulags- og innviðamála.
Fagfólk getur meðal annars kynnt sér þjónustu EFLU sem viðkemur sérhönnuðum gluggaeiningum, vind-og straumfræðigreiningum og kortavefsjá EFLU, kort.is
Bás EFLU á Verk og vit 2026 er númer B31, en hægt er að skoða kort og yfirlit yfir sýnendur á vefsíðu Verk og vit
Dagskrá á bás EFLU
Fimmtudagurinn 19. mars | Sýning opin fyrir fagaðila
- 15:00 – 15:30 | Formleg opnun Verk og vit
- 16:00 – 20:00 | Opnunarhóf á bás EFLU þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og sérfræðingar okkar verða á staðnum.
Föstudagurinn 20. mars | Sýning opin fyrir fagaðila
- 10:00 – 19:00 | Sérfræðingar kynna þjónustu EFLU
Sérfræðingar til samtals um:
- Kort.is
- Vind- og straumfræðigreiningar
- Gluggaeiningar
Laugardagurinn 21. mars | Sýning opin almenningi
- 11:00 – 17:00 | Almenn kynning á EFLU og verkefnum, sérfræðingar á svæðinu
- 13:00 – 15:00 | ÞYKJÓ Draumalandslag, módelsmiðja fyrir börn og ungmenni
Sunnudagurinn 22. mars | Sýning opin almenningi
- 12:00 – 17:00 | Almenn kynning á EFLU og verkefnum - sérfræðingar á svæðinu
- 13:00 – 15:00 | ÞYKJÓ Draumalandslag, módelsmiðja fyrir börn og ungmenni
Sérfræðiþekking í byggingariðnaði
Sérfræðingar á byggingarsviði EFLU verða á Verk og vit til að taka á móti gestum og ræða við þá um helstu áskoranir og tækifæri í byggingariðnaði. Auk þess að kynna hluta þeirrar víðtæku þekkingar sem býr innan fyrirtækisins.
Á sýningunni munu sérfræðingar EFLU meðal annars fjalla um framtíðarlausnir og þjónustu í byggingariðnaði, kynna nýjungar á sviði loftmynda, gagnagrunna og landupplýsinga og kynna nýstárlegar lausnir varðandi tölvuhermun í vind- og straumfræðigreiningu.
Forsmíðaðar útveggjaeiningar
Forsmíðaðar útveggjaeiningar sameina glugga, hurðir og útveggi í eina heildarlausn sem hentar sérstaklega vel fyrir stærri verkefni. Með þessari lausn er hægt að straumlínulaga byggingarferli bygginga, stytta framkvæmdatíma og tryggja gæði.
Kort.is
Kort.is sameinar loftmyndir, gagnagrunn, vefþjónustur og sérlausnir í eitt kerfi. Kerfið hentar sérstaklega sveitarfélögum, stofnunum og verkfræðistofum þar sem það einfaldar gagnaleit, flýtir afgreiðslu skipulagsmála, bætir yfirsýn og styður við markvissari og betur upplýsta ákvörðunartöku.
Töluleg straumfræði
Töluleg straumfræði (CFD) er aðferð sem nýtir tölvuhermanir til að líkja eftir og leysa flókin varma- og straumfræði verkefni. Með CFD er hægt að spá fyrir um flæði lofts, vökva og varma.
Vistferilsgreiningar mannvirkja
Ný ákvæði byggingarreglugerðar tóku gildi 1. september 2025 um gerð og skil vistferilsgreininga (LCA, einnig kallað lífsferilsgreiningar) fyrir byggingar, með áherslu á útreikning kolefnisspors.
EFLA hefur áratugareynslu í gerð vistferilsgreininga fyrir mannvirki.
Greining myglusýna
EFLA býður upp á greiningu myglusýna á eigin rannsóknarstofu. Þjónustan er ætluð fagfólki sem vinnur við úttektir og úrbætur vegna myglu og byggir á margra ára reynslu og sérfræðiþekkingu EFLU á sviði byggingarefna og umhverfisgæða.





Við bjóðum börn og ungmenni í smiðjuna Draumalandslagið
EFLU er annt um að kynna börnum og ungmennum fyrir verkfræðitengdum greinum og bjóðum öll velkomin í smiðjuna Draumalandslagið undir leiðsögn ÞYKJÓ.
Við skoðum náttúruna með augunum, höndunum, nefinu... og ímyndunaraflinu! Allir þátttakendur fá úthlutað sínum eigin litla landskika til að vinna með og einn lítinn íbúa. Við þjálfumst í að hugsa í skala og könnum fjölbreyttan efnivið með aðferðum landslagsarkitekta; mjúkan mosa, marrandi steinmöl og gljúpan kork. Kannski viltu búa til hæðótt landslag fyrir feluleiki - eða skjól fyrir veðri og vindum?

Hvað er ÞYKJÓ?
Hönnunarstarf ÞYKJÓ miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik. Í hönnunarvinnu höfum við til hliðsjónar hvernig hægt er að örva snertiskyn með efnisvali og formfræði, hreyfiþroska og jafnvægisskyn. ÞYKJÓ stendur einnig fyrir fjölbreyttum listsmiðjum, innsetningum og viðburðum í samstarfi við söfn og menningarstofnanir.
ÞYKJÓ er hópur hönnuða með fjölbreyttan bakgrunn sem samnýtir ólíka sérþekkingu í teymisvinnu sinni. Innan vébanda ÞYKJÓ eru arkitekt, leikja- og vöruhönnuður, fatahönnuður og klæðskeri og leikmynda- og búningahönnuður.
Hópurinn vinnur einnig náið með listafólki, vísindamönnum og fræðifólki á borð við uppeldisfræðinga, líffræðinga, listfræðinga og síðast en ekki síst - með börnum.