Göngu- og hjólastígar
Göngustígur, Göngustígar, Hjólastígur, Hjólastígar, Hjólreiðar
Hjólreiðar eru sífellt að verða algengari ferðamáti bæði innanlands og erlendis. Um allan heim er litið til hjólreiða sem hluta af lausninni við að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og útþenslu gatnakerfisins.
Starfsmenn EFLU hafa mjög góða þekkingu á kröfum og aðstæðum hjólreiðamanna og veita fjölþætta þjónustu á því sviði. Verkefnin spanna allt frá rýni á útfærslum og skipulagi til forhönnunar lausna sem og endanleg hönnun þeirra.
Tengiliðir
Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir Skipulagsfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6073 / +354 665 6073 Netfang: elin.rita.sveinbjornsdottir@efla.is Reykjavík
Sigrún Marteinsdóttir Byggingarverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6185 / +354 665 6185 Netfang: sigrun.marteinsdottir@efla.is Reykjavík
Ragnar Gauti Hauksson Samgönguverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6209 / +354 665 6209 Netfang: ragnar.gauti.hauksson@efla.is Reykjavík
Með fjölgun hjólreiðamanna er eðlilegt að umferð hjólreiðamanna verði aðskilin, ekki bara frá ökumönnum heldur líka frá gangandi vegfarendum. Það er því mikilvægt að útfæra aðgengilegar og greiðfærar lausnir fyrir fjölbreyttan hóp fólks.
Margs konar áskoranir
Stærstu áskoranir hjólreiðaverkefna felast yfirleitt annars vegar í því hversu fjölbreyttur hópur hjólreiðamenn er og hins vegar því að oftast er verið að vinna í núverandi umhverfi þar sem ekki hefur verið gert ráð fyrir reiðhjólinu strax frá upphafi og pláss því oft takmarkað. Slík vinna krefst skilnings á eðli hjólaumferðarinnar samhliða þekkingu á umferðaröryggi, því umferðaröryggi og öryggistilfinning hjólreiðamanna fer ekki endilega saman.
Hjá EFLU er lögð áhersla á að fylgjast með rannsóknum á svið hönnunar fyrir reiðhjól þannig að á hverjum tíma sé veitt ráðgjöf í samræmi við nýjustu þekkingu.
Heildarlausnir á málefnum hjólreiða
Víðtæk þekkingu og skilningur sérfræðinga EFLU á málefnum hjólreiða nýtist við að skila heildarlausn við einfaldar jafnt sem flóknar aðstæður.
Á meðal þjónustusviða eru
- Skipulagning á göngu- og hjólastígum
- Forhönnun og endanleg hönnun göngu- og hjólastíga
- Öryggisúttektir og rýni á lausnum