Beint í efni

Vöru­stjórn­un

Vörustjórnun er lykilatriði í rekstri fyrirtækja. Rétt skipulag og stjórnun birgða geta ráðið úrslitum um hvort fyrirtæki lendi í háum kostnaði og seinkunum eða nái fram hagkvæmum, sveigjanlegum og ábatasömum lausnum sem auka ánægju viðskiptavina.

Vörubílar og vagnir um vörumiðstöð.

Traustur samstarfsaðili

EFLA býður víðtæka ráðgjöf og þjónustu sem miðar að því að bæta vörustjórnun, aðfangastýringu, vöruflutninga og rekstur vöruhúsa. Við sérhæfum okkur í því að greina og hagræða ferlum, lækka kostnað og byggja upp sterka og skilvirka birgðakeðju. Lausnir okkar eru hannaðar til að tryggja betri yfirsýn, styttri afhendingartíma og meiri sveigjanleika í rekstri.

Gæði og hagkvæmni

Með markvissri ráðgjöf í vörustjórnun geta fyrirtæki vænst:

  • Lækkun á rekstrarkostnaði með minni birgðabindingu og lægri flutnings- og geymslukostnaði.
  • Betri þjónustu við viðskiptavini með styttri afhendingartímum og auknu afhendingaröryggi.
  • Aukinnar yfirsýnar og skilvirkari ákvarðanatöku með skýrari gögnum og mælikvörðum (KPI).
  • Meiri sveigjanleika í rekstri sem auðveldar viðbrögð við sveiflum í eftirspurn.
  • Samkeppnisforskot með hagræðingu, faglegri stjórnun og öflugri ferlastjórnun.

Meðal þjónustusviða eru:

  • Hönnun, staðarval og uppbygging vöruhúsa
  • Verkefnastjórn við umbætur eða nýframkvæmdir
  • Þarfagreiningar við val á búnaði til rekstrar vöruhúsa
  • Flæðisgreiningar í framleiðslu, vöruhúsum og dreifingu
  • Kortlagning vinnuferla og greining á framleiðni og hagkvæmni
  • Mat á nýtingu og skilvirkni í birgðahaldi og tiltekt pantana
  • Greining á sjálfvirknilausnum í rekstri
  • Mat á upplýsingakerfum og stýringu (WMS, ERP o.fl.)
  • Mat á öryggisþáttum og sjálfbærni í rekstri
  • Samþætting kerfa og ferla, ásamt þjálfun starfsmanna
  • Innleiðing LEAN og frammistöðumælingar
  • Stjórnun vinnustofa fyrir umbótaverkefni tengd vörustýringu
  • Þjálfun rekstrar- og þjónustufólks

Rétt vörustjórnun skapar forskot

Með ráðgjöf EFLU í vörustjórnun geta fyrirtæki lækkað kostnað, aukið skilvirkni og byggt upp traust við viðskiptavini. Niðurstaðan er sveigjanlegri rekstur, öflugri birgðakeðja og sterkari samkeppnisstaða.