Árangur
Tilnefningar, viðurkenningar og styrkir.

Framúrskarandi fyrirtæki
EFLA fékk viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt mati Creditinfo. Þetta er 15. árið í röð sem EFLA hlýtur þessa viðurkenningu. EFLA er eitt af 53 fyrirtækjum sem hefur verið Framúrskarandi frá upphafi. Alls fengu 1.136 fyrirtæki þessa viðurkenningu í ár og stóðust því ströng skilyrði Creditinfo til að verða Framúrskarandi fyrirtæki. Fyrirtækjum á listanum fjölgaði um 12% á milli ára. EFLA var í 49. sæti á heildarlista allra fyrirtækja á þessum lista, en í 1. sæti á lista yfir fyrirtæki í sinni atvinnugrein eða fyrirtækja þar sem stunduð er sérfræðileg-, vísindaleg- og tæknileg starfsemi.

Viðurkenning jafnvægisvogar FKA
EFLA hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogar Félags kvenna í atvinnulífinu annað árið í röð fyrir að hafa jafnað kynjahlutfall í framkvæmdarstjórn félagsins. Í framkvæmdarstjórn EFLU sitja nú fjórar konur og fjórir karlar, sem tryggir fullkomið jafnrétti í ákvörðunarferlum fyrirtækisins. Frá árinu 2021 hefur EFLA verið virkur þátttakandi í verkefni Jafnvægisvogarinnar og lagt áherslu á að hvetja konur til aukinnar ábyrgðar innan fyrirtækisins.

Fyrirtækjarvefur ársins
Nýr alþjóðlegur vefur EFLU, EFLA-engineers.com, var valinn Fyrirtækjavefur ársins í flokki stórra fyrirtækja á Íslensku vefverðlaununum. Samstarfsverkefni EFLU og Hugsmiðjunnar, með ráðgjöf frá Digido, skapaði vef sem dómnefndin lofaði fyrir áhugaverða og lifandi framsetningu efnis. Vefurinn var sérstaklega hannaður til að veita skýrar upplýsingar um þjónustu og verkefni EFLU, með áherslu á að gera efnið aðgengilegt og fróðlegt fyrir alþjóðlegan markað. Nánar

Teningurinn
Almannavarnir, í samstarfi við EFLU og Verkís, hlutu viðurkenninguna Teninginn frá Verkfræðingafélagi Íslands fyrir framúrskarandi verkefni á Degi verkfræðinnar. Viðurkenningin var veitt fyrir sameiginlegt verkefni á sviði innviðaverndar og náttúruvárstjórnunar, þar sem EFLA lék lykilhlutverk. Nánar

Íslenski sjávarklasinn
EFLA og Íslenski sjávarklasinn hófu samstarf sem miðar að aukinni verðmætasköpun í bláa hagkerfinu. Verkefnið Verbúðin snýst um að styrkja tengsl frumkvöðlafyrirtækja og rótgróinna fyrirtækja í sjávarútvegi og stuðla að nýtingu hráefna sem áður voru talin úrgangur. Verkefnið hefur það að markmiði að leita nýrra lausna fyrir sjávarútveginn og efla rannsóknarstarf með aðkomu háskólasamfélagsins.Nánar

Frumkvöðlar á Akureyri
EFLA á Akureyri hóf þátttöku í Drift EA, samstarfsverkefni sem styður frumkvöðla í Eyjafirði. Verkefnið miðar að því að byggja upp öfluga frumkvöðlastarfsemi með aðsetur í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg. Drift EA er sjálfseignarstofnun sem hjálpar frumkvöðlum að þróa hugmyndir sínar og koma þeim í framkvæmd. Nánar

Grænafl
EFLA skrifaði undir samstarfssamning við Grænafl á Siglufirði. Markmið verkefnisins er að stuðla að orkuskiptum í minni strandveiðibátum með því að innleiða rafvæðingu og þróa innviði fyrir hleðslustöðvar í höfnum landsins. Þátttaka EFLU í þessu verkefni, sem unnið er í samvinnu við kóreska og íslenska samstarfsaðila, styður stefnu fyrirtækisins um sjálfbærni og þróun nýrrar tækni. Nánar