Kolefnisspor

Við útreikninga á kolefnisspori fyrirtækisins notar EFLA aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol. Kolefnisspor fyrirtækis tengist bæði beinni losun GHL, sem fyrirtækið hefur stjórn á, og óbeinni losun GHL frá starfseminni.

Hafið séð frá ströndu.

Við útreikninga á kolefnisspori fyrirtækisins notar EFLA aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol. Kolefnisspor fyrirtækis tengist bæði beinni losun GHL, sem fyrirtækið hefur stjórn á, og óbeinni losun GHL frá starfseminni. Hjá EFLU tengist bein losun GHL notkun bifreiða í rekstri EFLU. Óbein losun EFLU samkvæmt Greenhouse Gas Protocol er af völdum notkunar rafmagns og losunar vegna aksturs starfsfólks á eigin bílum og bílaleigubílum á vegum EFLU. Einnig veldur losun vegna flugs starfsfólks óbeinni losun GHL, sem og meðhöndlun úrgangs. Þetta eru þeir þættir sem tekið var tillit til þegar loftslagsmarkmið fyrirtækisins voru sett miðað við árið 2015. EFLA upplýsir um fleiri þætti sem stuðla að óbeinni losun GHL í starfseminni í umfangi 3, svo sem akstur starfsfólks til og frá vinnu, matarinnkaup og innkaup á raftækjum, sjá hér fyrir aftan.

Við útreikninga á losun GHL notar EFLA losunarstuðla sem Umhverfisstofnun gefur út reglulega, þegar það á við. Einnig notar EFLA hugbúnaðarlausnirnar Matarsporið og Klappir ásamt umhverfisupplýsingum viðkomandi raftækja (e. EPD Environmental Product Declaration), þar sem þær liggja fyrir, sem og aðrar reiknivélar eins og við á, svo sem fyrir flug.

Losun gróðurhúsalofttegunda á hvert stöðugildi var 0,57 tonn CO2-ígilda árið 2024 og var um 60% lægri en árið 2015 (1,43 tonn CO2-ígilda/stöðugildi). Loftslagsmarkmið EFLU fyrir árið 2024 var að halda kolefnisspori á stöðugildi undir 0,96 tonnum CO2-ígilda. Hins vegar er kolefnisspor ársins á hvert stöðugildi 2024 22% hærra en það var árið 2023 (0,47 tonn CO2-ígilda/stöðugildi), sem tengist aðallega meiri losun vegna flugs innanlands og erlendis á milli ára og akstri starfsfólks á vegum vinnunnar. EFLA er í stöðugum vexti bæði innanlands sem og erlendis, sem hefur í för með sér aukin samskipti og umsvif á milli landa.

Árið 2024 stuðlaði EFLA að kolefnisbindingu á sem samsvarar 211 tonnum CO2-ígilda í samstarfi við Kolvið, sem býður upp á vottaðar kolefniseiningar í skógrækt.

EFLA leggur áherslu á að auka upplýsingagjöf varðandi umfang 3 í starfsemi sinni. Þetta eru þættir sem fyrirtækið hefur hefur óbein áhrif á og voru ekki taldir fram í umfangi 3, þegar markmið voru sett miðað við árið 2015. Hér er um að ræða losun vegna kaupa á nýjum raftækjum (tölvur, skjáir og símar), losun vegna innkaupa á matvöru í mötuneyti í höfuðstöðvum EFLU og aksturs starfsfólks til og frá vinnu. Losun tengd þessum þáttum var um 394 tonn, eða um 1,1 tonn CO2-ígilda /stöðugildi, sem er lækkun um 18% á milli ára miðað við 1,3 tonn CO2-ígilda /stöðugildi árið 2023.

Þegar tekið er tillit til aukins umfangs í óbeinni losun EFLU er heildarlosun GHL á hvert stöðugildi um 1,7 tonn CO2-ígilda, eða samtals um 634 tonn CO2-ígildi sem er 8% lækkunum frá árinu á undan, sem var 1,8 tonn CO2-ígilda/stöðugildi.

Losun gróðurhúsalofttegunda (GHL)

ÁhrifLosun gróðurhúsalofttegunda (GHL)Umfang2015*202220232024
BeinAkstur bifreiða í rekstri EFLU173373638
ÓbeinRaforka (með upprunaábyrgð)26,85,36,06,3
ÓbeinVarmaorka24,212,211,012
ÓbeinAkstur bílaleigubíla3134,36,34,6
ÓbeinAkstur starfsmanna á vegum vinnu á eigin bílum363363946
ÓbeinFlug innanlands3101352638
ÓbeinFlug erlendis3101443260
ÓbeinUrðun og brennsla úrgangs og lífrænn úrgangur35,04,5***6,5***5,7
Samtals losun GHL, kolefnisspor án bindingar 367179163211
Samtals losun GHL/stöðugildi 1,430,560,470,57
Kolefnisbinding 0168164211
Kolefnisspor að teknu tilliti til bindingar 367000
Viðbót ÓbeinAkstur starfsmanna til og frá vinnu3137102126123
Viðbót ÓbeinÁrshátíðarferð3 627
Viðbót ÓbeinSkrifstofutæki3 47186123
Viðbót ÓbeinMatarinnkaup3 106135148
Kolefnisspor annarra þátta sem starfsemi EFLU hefur óbein áhrif á 822447394
Samtals losun GHL/stöðugildi 2,71,31,1
Kolefnisbinding 62712**0
Kolefnisspor að teknu tilliti til bindingar 255435394
Fjöldi stöðugilda EFLU á Íslandi 257322345367
*Árið 2015 er viðmiðunarár
*Losun raforku felur í sér losun vegna framleiðslu bæði á rafmagni og heitu vatni
**Framleiðendur raftækja kolefnisjafna hluta framleiðslunnar
*** Leiðréttingar hafa verið gerðar og gögn hafa verið uppfærð afturvirkt fyrir fyrra ár í ljósi nýrra upplýsinga.

Hlutfallsleg losun GHL, umfang 1,2 og 3 eins og það var sett fram grunnárið 2015

Hlutfallsleg losun, umfang 1,2 og 3 og aukið umfang

Losun GHL í rekstri EFLU, umfang 1,2,,3 eins og það var sett fram árið 2015

Losun GhHL í rekstri EFLU umfang 1, 2 og aukið umfang 3

Lykiltölur í grænu bókhaldi EFLU 2023

UmhverfisþátturEining202220232024Eining20232024Breyting
Raforka
RaforkunotkunkWst649.235732.727750.853kWst/m275761%
Eldsneyti
Bensín og dísellítrar14.04613.63514.869l/st.gildi39413%
Vatnsorka
Heitt vatnm328.15527.05527.508m3/m20,890,934%
Úrgangur*
Efni til endurvinnslu/endurnýtingar
Endurvinnanlegur úrgangur (pappi, pappír, plast og málmar)Tonn9,24,94,5Kg/st.gildi172011%
Lífrænn úrgangurTonn8,61011Kg/st.gildi40,539,5-2%
SteinefniTonn7,59,611
RaftækiTonn0,220,170,16
Efni til orkunýtingar 7,87Kg/st.gildi2825-10%
Efni til förgunar
UrðunTonn4,01,10,5Kg/st.gildi42-51%
SpilliefniTonn0,100Kg/st.gildi00
Endurvinnsluhlutfall% %96993%
Losun GHL
Kolefnisspor losunarþátta miðað við loftlagsmarkmið EFLU frá árinu 2015Tonn CO2-ígilda180164211tonn CO2-ígildi/st.gildi0,470,5722%
Kolefnisspor annarra þátta sem starfsemi EFLU hefur óbein áhrif á 882455394tonn CO2-ígildi/st.gildi1,31,1-18%
KolefnisbindingTonn CO2-ígilda807164211
Heildarfjöldi stöðugilda 322346367
Stöðugildi höfuðstöðva 243257279
*Eingöngu stöðugildi höfuðstöðva