Sjálfbærni- og ársskýrsla 2024

Sjálfbærni- og ársskýrsla hefur verið gefin út frá árinu 2015 og í þeim má finna upplýsingar um árangur og framgang fyrirtækisins. Þar er meðal annars sagt frá mælanlegum umhverfismarkmiðum EFLU, verkefnum tengdum samfélagslegri ábyrgð, samfélagsuppgjör og birtar lykiltölur umhverfisþátta.

EFLA að halda í grunngildin
Í ársbyrjun 2022 grunaði fáa að hernaðarinnrás yrði gerð í Evrópuríki í febrúar það ár. Í ársbyrjun 2025 grunaði sömuleiðis fáa að nýkjörin stjórnvöld í Bandaríkjunum myndu á nokkrum vikum umbylta samstarfi sínu við önnur ríki, samstarfi sem meðal annars hefur tryggt frið að mestu í hinum vestræna heimi síðastliðin áttatíu ár. Það er því óhætt að fullyrða að síðustu þrjú ár hafi fært okkur heim sanninn um að allt sé í heiminum hverfult.
Þegar miklar breytingar verða á skömmum tíma og rótgróin kerfi hökta eða ná jafnvel ekki að aðlagast nýjum aðstæðum, veldur það óvissu og jafnvel ótta. Óvissu um hvað taki við og ótta við að þegar rykið setjist verði staðan verri en hún var fyrir breytingar. Þegar slík staða er uppi er gott að horfa til þeirra grunngilda sem við viljum að samfélag okkar byggi á og styrkja tengslin við önnur samfélög sem deila sömu eða svipuðum gildum.

„Við hjá EFLU horfum því spennt til ársins 2025, tilbúin að takast áfram á við krefjandi verkefni og að aðlaga okkur að síbreytilegum aðstæðum. Hugrekki, samvinna og traust verða áfram grunngildin í öllu okkar starfi.“
Sæmundur Sæmundsson
Fyrirtæki er í eðli sínu samfélag. Haghafar þess; eigendur, starfsmenn og samfélagið sem fyrirtæki starfa í, hafa sameiginlega hagsmuni af því að reksturinn gangi vel og skili ábata af starfseminni fyrir alla aðila. Til þess að undirbyggja sameiginlegan skilning á þessum hagsmunum skilgreina fyrirtæki oft gildi sín, sem eiga að lýsa því í hnotskurn hvernig þau ætla að uppfylla væntingar haghafanna. Hjá EFLU hefur verið starfað eftir þremur grunngildum um árabil. Þau eru hugrekki, samvinna og traust. Þessi gildi eru ekki bara orð sem eru notuð í kynningum og á tyllidögum. Þessi gildi eru grunnstefið í því hvernig við vinnum þau verkefni sem okkur eru falin. Það krefst hugrekkis að þora að hugsa út fyrir boxið og finna nýjar leiðir til að leysa flókin vandamál. Það krefst samvinnu starfsfólks og viðskiptavina að vinna verkefni til farsællar niðurstöðu. Síðast, en ekki síst, þurfa öll viðskipti að byggja á trausti til þess að allir sem hlut eiga að máli séu betur settir eftir að viðskiptum lýkur en áður en til þeirra var stofnað. Með þessi gildi að leiðarljósi hefur EFLU-samstæðan vaxið og dafnað og verið leiðandi við að finna lausnir á flóknum verkefnum sem henni hefur verið treyst til að leysa.
Árið 2024 var afar hagfellt fyrir EFLU. Vöxtur var í öllum helstu þáttum starfseminnar, rétt eins og undanfarin ár, og afkoman var mjög góð. Samstæða EFLU samanstendur nú af sjö fyrirtækjum í jafn mörgum löndum, auk þess sem verkefni eru unnin á enn fleiri markaðssvæðum. Við stofnuðum EFLU ApS í Danmörku á árinu og ætlum okkur að byggja þar upp öflugt fyrirtæki, rétt eins og önnur dótturfélög samstæðunnar.
EFLA er þekkingarfyrirtæki. Starfsemin snýst alfarið um að nýta sérfræðiþekkingu þess starfsfólks sem vinnur hjá fyrirtækinu. Mannauðurinn er því mikilvægasti hlekkurinn í rekstri EFLU. Við höfum sett okkur krefjandi markmið að verða meðal eftirsóttustu vinnustaða í okkar geira, á öllum þeim markaðssvæðum sem við störfum á. Allar mælingar sýna að EFLA er vel stödd á þessari vegferð og að leiðin liggur upp á við.