Innivist og heilsa
Hús og heilsa, raki, mygla, loftgæði, myglusveppur, rakaskemmdir, sveppur, Mygla í húsum, Rakaskemmdir
EFLA veitir sérhæfða þjónustu og ráðgjöf varðandi heilnæm hús og innivist varðandi þá þætti sem hafa bein áhrif á líðan notenda bygginga. Það eru m.a. atriði eins og loftgæði, efnisval, rakaskemmdir, mygla, hljóðvist, birtuskilyrði frá lýsingu, öryggismál, viðhaldsþörf og umhirða húsnæðis.
Tengiliður
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Líffræðingur B.Sc. Sími: +354 412 6244 / +354 665 6244 Netfang: sylgja.sigurjonsdottir@efla.is Reykjavík
Við verjum að jafnaði 90% af tíma okkar innandyra og því skipta loftgæði og góð innivist miklu máli fyrir heilsu og vellíðan. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)hefur gefið út leiðarvísa vegna rakaskemmda, myglu og efnaútgufunar innandyra og tengsl þess við heilsu og líðan.
Innivist og vellíðan
EFLA veitir fjölbreytta ráðgjöf hvað varðar heilnæmi bygginga og eru viðfangsefnin margvísleg, bæði stór og smá. Allt frá því að veita ráðgjöf vegna húsnæðis einstaklinga yfir í að framkvæma heildstæða úttekt á vinnustöðum. Ráðgjöfin getur meðal annars falist í útfærslu viðgerða og hafa eftirlit með framkvæmd og hreinsun vegna rakaskemmda.
Þverfaglegt teymi
Hjá EFLU starfar öflugt og þverfaglegt teymi sem samanstendur af byggingarfræðingum, byggingartæknifræðingum, verkfræðingum, efnaverkfræðingum, matsfræðingi, húsasmíðameisturum, líffræðingum, lýðheilsufræðingi, líftækninema og hjúkrunarfræðingi.
Innivist hefur áhrif á heilsu og vellíðan
Innivist og loftgæði skipta miklu máli fyrir notendur bygginga. Góð innivist stuðlar að betri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum.
Á meðal þjónustusviða er
- Vinnuvistarkönnun, þ.e. könnun á líðan starfsfólks
- Loftgæða-, raka- og agnamælingar
- Viðhaldsþörf húsnæðis
- Rannsóknir og sýnataka vegna rakaskemmda
- Loftsýni og mæling á ögnum í lofti og rokgjörnum efnum
- Loftþéttleikamælingar, þéttleiki rakavarnar mældur
- Loftþrýstingsmælingar, þrýstingsbreytingar og loftlekar
- Ráðgjöf vegna efnisvals í byggingar
- Fræðsla og ráðgjöf við val á hreinsiefnum, efnisval tengdu húsbúnaði og innivið með tillit til kemískra efna og útgufunar VOC
- Ráðgjöf og gerð verkferla vegna þrifa og umhirðu húseigna
- Hljóðvistarráðgjöf
- Ráðgjöf vegna birtuskilyrða frá lýsingu
- Brunavarnir og öryggismál
- Fræðsla og námskeiðahald
Vantar þig ráðgjöf?
EFLA veitir ráðgjöf í síma eða með myndsímtali. Hægt er að panta samtal með því að senda okkur samtalsbeiðni. Í kjölfarið hefur ráðgjafi samband við þig og ráðleggur um næstu skref.
Hvað kostar ráðgjöfin?
Upphafsgjald þjónustunnar, sem fer fram í gegnum símtal eða myndsamtal, m.v. allt að 15 mín. samtal er 8.000 kr m.vsk. Eftir það tekur gjaldið mið af þeim tíma sem fer í ráðgjöfina út eftirfarandi gjaldskrá:
Gjaldskrá - Samtal | Verð án vsk | Verð m.vsk |
Upphafsgjald 15 mín. | 6.452 kr | 8.000 kr |
16-30 mín. | 9.677 kr | 12.000 kr |
31-45 mín. | 14.516 kr | 18.000 kr |
46-60 mín. | 19.355 kr | 24.000 kr |
Hvernig borga ég fyrir ráðgjöfina?
Eftir að samtalinu lýkur sendum við þér hlekk á örugga greiðslusíðu þar sem þú getur gengið frá greiðslu með kreditkorti eða með því að leggja inn á bankareikning. Ef verkefnið er þess eðlis að við þurfum að koma á staðinn, taka sýni eða skoða fasteignina meira verður hægt að ganga frá greiðslu samhliða því. Kostnaður er skv. verðskrá heimilisskoðunar og tekur mið af umfangi hverju sinni.
Skilmálar vegna ráðgjafarsímtala - EFLA - Innan handar
Viltu hafa samband?
Ef þú vilt vita meira um þjónustuna eða bóka fasteignaskoðun er það velkomið. Sendu okkur skilaboð og við höfum samband við þig.
Hafa samband