Loftræsihönnun
Loftræsing, Loftræsting, Loftræstihönnun, Loftræsikerfi, Loftræstikerfi, Loftræsilausnir, Innivist
EFLA er leiðandi ráðgjafi í hönnun og eftirliti loftræsikerfa í mannvirkjum af öllum stærðum og gerðum.
Ráðgjöfin felur meðal annars í sér gerð loftgæðalíkana á frumstigum hönnunar til ákvarðanatöku á loftræsilausnum og gerð kostnaðar- og gæðamats á mismunandi lausnum.
Tengiliður
Harpa Sif Gísladóttir Vélaverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6119 / +354 848 9076 Netfang: harpa.gisladottir@efla.is Reykjavík
Við leggjum mikla áherslu á vandaðar virknilýsingar til að tryggja að virkni og rekstur kerfa verði sem hagkvæmust. EFLA býður jafnframt upp á þarfagreiningu, ráðgjöf og hönnun vegna úrbóta og stækkunar á eldri loftræsikerfum.
Starfsfólk EFLU býr yfir víðtækri reynslu í loftræsihönnun í byggingum, samgöngumannvirkjum og iðnaði í ólíkum greinum eins og úr framleiðslu, orkumálum og sjávarútvegi.
Afköst, vellíðan og loftgæði
Hitastig og loftgæði í byggingum hafa áhrif á afköst, vellíðan og heilsu notenda. Með góðri ráðgjöf og hönnun má ná fram endingarbetri loftræsikerfum, lægri rekstrarkostnaði og betri loftgæðum og varmavist í byggingum.
Verkefni
Á meðal þjónustusviða eru
- Loftgæðalíkön og ráðgjöf fyrir innivist
- Loftræsikerfi fyrir byggingar
- Loftræsikerfi fyrir iðnað
- Virknilýsingar fyrir loftræsikerfi
- Gagnaver
- Gagnaveitur