Menning

EFLA hefur á að skipa hæfu, reynslumiklu og áhugasömu starfsfólki sem starfar á fjölbreyttum sviðum. Mikilvægt er að starfsfólki geti þróast í starfi og sýni sjálfstæði og frumkvæði.

Fólk að vinna við fartölvu, brosandi að benda á skjáinn

Samfélagsleg ábyrgð og hugarfar nýsköpunar í starfi eru meðal áhersluatriða í menningu EFLU. Allt starfsfólk er mikilvægur hlekkur í starfseminni og framlag hvers og eins skiptir máli fyrir góðan árangur fyrirtækisins.

Í árslok 2024 störfuðu 432 einstaklingar í 367 stöðugildum hjá EFLU hf. en heildarfjöldi starfsfólks hjá félaginu og dótturfélögum var 556 einstaklingar. Þar af voru 6 starfsnemar og 35 nemar í sumarstarfi hjá EFLU. Starfsfólk EFLU býr yfir fjölbreyttri menntun og er menntunarstig starfsfólks mjög hátt en meira en 90% þess hefur háskólamenntun. Starfsfólk býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sviði verkfræði, tækni og í ýmsum öðrum greinum. Hjá EFLU er kynjahlutfall þannig að 39% starfsfólks eru konur og 61% starfsfólks eru karlar. Ekkert starfsfólk EFLU er skráð kynhlutlaust. Það er yfirlýst stefna EFLU að auka hlut kvenna og hlutlausra kynja, t.d. í gegnum nýráðningar og fræðslu. Meðalstarfsaldur er rúmlega átta ár og meðallífaldur starfsfólks 42 ár. Aldursbreidd starfsfólks EFLU er mjög mikil eða frá 19 til 75 ára. Hlutfallslega flest starfsfólk er á aldrinum 30 – 39 ára eða um 30% starfsfólks.

Starfsfólk EFLU

  • Starfsmenn árið 2024
  • %
    Starfsfólk EFLU eru konur
  • Sumarstarfsmenn
  • ár
    Meðalstarfsaldur

Störf óháð staðsetningu

EFLA býður upp á störf óháð staðsetningu og hefur starfsfólki sem velur að starfa í heimabyggð fjölgað. Þetta starfsfólk sinnir því sínu starfi utan hefðbundinna starfsstöðva félagsins eða fjarri sínum fagteymum og nýtir tæknina til að eiga samskipti. Samhliða hafa stjórnendur lagt sig fram um að mæta nýjum áskorunum með nýjum og fjölbreyttum aðferðum í því skyni að styðja sem best við sitt starfsfólk.

Móttaka nýs starfsfólks

Aukin áhersla var lögð á móttöku nýs starfsfólks á árinu enda skiptir vandað móttökuferli mjög miklu máli. Það hvernig tekið er á móti nýju starfsfólki getur haft mikil áhrif á líðan þess og síðar helgun í starfi. Á árinu 2024 hófu rúmlega hundrað starfsmenn störf hjá EFLU hf. Móttökuferlið er skilgreint sem tveggja ára ferli. Kallað er eftir upplifun starfsfólks með reglubundnum könnunum á tímabilinu, auk þess sem öllu nýju starfsfólki stendur til boða að hitta mannauðssérfræðing til að ræða það sem vel er gert sem og það sem betur má fara í nýliðaferlinu. Unnið er að endurskoðun og þróun á nýliðakynningum.

Heilsueflandi vinnustaður

EFLA leggur metnað sinn í að hlúa að heilsu og vellíðan starfsfólks og hefur verið í hópi heilsueflandi vinnustaða á Íslandi frá upphafi verkefnisins árið 2020. Um er að ræða verkefni á vegum Embættis landlæknis, Vinnueftirlitsins og VIRK. Heilsueflandi vinnustaður er sameiginlegt verkefni vinnuveitenda, starfsfólks og samfélagsins og nær til félagslegra, andlegra og líkamlegra þátta sem stuðla að vellíðan einstaklings.  

Árlega er lagt mat á stöðu EFLU í samræmi við viðmið Embættis landlæknis og VIRK, auk þess sem kallað er eftir upplifun starfsfólks í árlegri vinnustaðakönnun. Markmið verkefnisins er að skapa umhverfi og aðstæður í vinnuumhverfi starfsfólks sem stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan, svo sem hollu mataræði, hreyfingu, góðu vinnuumhverfi og góðum samskiptum.

Skjáskot úr ræktarvídjói

Vellíðan

Vellíðan starfsfólks er mikilvæg og mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda sem byggir á sálfræðilegu öryggi og góðri teymisvirkni.

Jafnrétti

Jafnréttis- og jafnlaunastefna EFLU byggir á þeirri grundvallarhugsun að allt starfsfólk njóti jafnréttis, óháð kyni, uppruna eða trú.

Andleg og líkamleg heilsa starfsfólks

EFLA leggur áherslu á að hlúa vel að andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólks. EFLA hvetur starfsfólk til heilbrigðra lífshátta og umhverfisvænna ferðamáta og reynt er að gera starfsfólki þetta mögulegt og aðgengilegt eins og hægt er.

Vellíðan

Vellíðan starfsfólks er mikilvæg og mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda sem byggir á sálfræðilegu öryggi og góðri teymisvirkni. Þar skiptir miklu máli að traust ríki í teymum þar sem starfsfólk getur sagt hug sinn af einlægni og skipst á hugmyndum og aðferðum á uppbyggilegan máta. Teymisvirkni og samábyrgð ýtir undir samvinnu þar sem starfsfólk leitar hvert til annars og deilir þekkingu sinni og reynslu. Einelti og áreitni eru ekki liðin hjá EFLU og lögð er áhersla á fræðslu og þjálfun um málaflokkinn. Árlega eru framkvæmdar EKKO (einelti, kynferðisleg og kyndbundin áreitni og ofbeldi) kannanir og vellíðunarkannanir, niðurstöður kynntar fyrir starfsfólki og gripið til aðgerða eftir þörfum. Áfram var kapp lagt á að koma sem best til móts við starfsfólk í formi sveigjanleika, heimavinnu, góðs upplýsingaflæðis og fræðslu, svo dæmi séu nefnd. Á árinu var lögð áhersla á að styrkja og viðhalda góðum tengslum við starfsfólk í fæðingarorlofi. Haldnir voru foreldramorgnar fjórum sinnum á árinu, þar sem starfsfólki var boðið að koma með börnin á vinnustaðinn og hitta samstarfsfólk. Boðið var upp á stutt fræðsluerindi, til dæmis um svefn barna, tengsl og hreyfingu í fæðingarorlofi.

Jafnrétti

Jafnréttis- og jafnlaunastefna EFLU byggir á þeirri grundvallarhugsun að allt starfsfólk njóti jafnréttis, óháð kyni, uppruna eða trú. EFLA hlaut jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 árið 2019 og var vottunin endurnýjuð á árinu 2024 með gildistíma til ársins 2028. Eitt af markmiðum EFLU er að enginn launamunur sé á milli kynjanna sem og að launamunur mælist aldrei hærri en 1%. Niðurstöður síðustu launagreiningar sýndu að óútskýrður launamunur var um 0,2% körlum í óhag, en árið áður mældist munurinn 0,5% körlum í óhag, sem er í fyrsta skipti sem mælingar sýndu niðurstöður körlum í óhag. Hjá EFLU hefur enginn óskað eftir kynlausri skráningu og því er samanburðurinn einungis á milli tveggja kynja, þ.e. karla og kvenna. EFLA hlaut á árinu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir að vera eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa undirritað viljayfirlýsingu um jafnt kynjahlutfall í framkvæmdarstjórn félagsins.

Andleg og líkamleg heilsa starfsfólks

EFLA leggur áherslu á að hlúa vel að andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólks. EFLA hvetur starfsfólk til heilbrigðra lífshátta og umhverfisvæns ferðamáta og reynt er að gera starfsfólki þetta mögulegt og aðgengilegt eins og hægt er. Á árinu 2024 fengu um 74% starfsfólks greiddan íþrótta- eða hreyfingarstyrk og um 32% starfsfólks hafði gert samgöngusamning. Árlega eru framkvæmdar heilsufarsmælingar á starfsstöðvum EFLU fyrir þau sem það kjósa, auk þess sem boðið er upp á flensusprautu að hausti. Í höfuðstöðvum EFLU er góð aðstaða fyrir starfsfólk til íþróttaiðkunar, tímar í hreystiþjálfun og annars konar líkamsrækt hafa verið í boði og aðstaða fyrir heilsunuddara. Hvíldarherbergi er til staðar á flestum starfsstöðum, þar sem starfsfólk getur kúplað sig út úr verkefnum dagsins með stuttri hvíld, nýtt sér nuddtæki og slakað á. EFLA hefur hlotið gullvottun sem hjólavænn vinnustaður. Vottunin hvetur vinnustaði til að bæta aðbúnað hjólreiðafólks, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk, og hvetja þannig fleiri til að velja umhverfisvæna og heilbrigða ferðamáta í daglegu lífi. Lögð er áhersla á að gera starfsfólki kleift að hlúa að andlegri heilsu og starfsfólki veitt aðstoð ef það óskar eftir henni.

Diskur með salati og kjöti á

Hollur og næringarríkur matur

Framúrskarandi mötuneyti er rekið í höfuðstöðvum EFLU. Þar getur starfsfólk, gegn vægu gjaldi, fengið góðan og næringarríkan hádegisverð, auk þess sem starfsfólki er daglega boðið upp á ferska ávexti, mjólkurvörur, hrökkbrauð, álegg, hnetur og fleira án endurgjalds. Lögð er áhersla á að merkja vel ofnæmisvalda og grænkeravalmöguleika í mat sem borinn er fram í mötuneytinu. Þar hefur starfsfólk auk þess aðgang að þjónustuvef sem sýnir kolefnisspor allra máltíða ásamt næringarefnainnihaldi hverrar máltíðar. Þannig geta matreiðslumeistarar EFLU alltaf stillt máltíðir af m.t.t. næringar og upplýst starfsfólk. Leitast er við að bjóða upp á holla valkosti í hádegisverð á starfsstöðvum á landsbyggðinni þar sem ekki eru rekin mötuneyti.

Helgun starfsfólks og starfsandi

EFLA framkvæmir reglulega vinnustaðakannanir í samstarfi við Gallup. Í könnununum er meðal annars helgun starfsfólks mæld sem og starfsánægja, auk ýmissa annarra atriða sem snúa að líðan og upplifun starfsfólks í vinnuumhverfi sínu. Mæling á helgun starfsfólks byggir á tólf lykilþáttum sem tengjast bæði líðan starfsfólks og rekstrarlegum þáttum. Niðurstöður mælinga á helgun starfsfólks hjá EFLU árið 2024 var 4,16, sem er svipað og árið á undan. Starfsánægja hjá EFLU mælist frekar há og var svipuð árið 2024 og fyrra ár, eða 4,39 af 5 mögulegum. Snerpusamtöl eru framkvæmd þrisvar á ári þar sem starfsfólki gefst kostur á samtali við næsta yfirmann um líðan í starfi, starfsþróun eða annað sem brennur á hverju sinni.

Börn sitja fyrir framan föður.

Jafnvægi á milli vinnu og einkalífs

EFLA leggur áherslu á að bjóða starfsfólki sínu upp á sveigjanlegan vinnutíma til að mæta ólíkum þörfum þess. Lögð er áhersla á að starfsfólk nái að halda góðu jafnvægi milli vinnu og einkalífs og er ávallt reynt að koma til móts við þarfir starfsfólks vegna aðstæðna sem geta skapast í einkalífi þeirra. Í vinnustaðakönnun 2024 metur starfsfólk sveigjanleika á vinnustaðnum og benda niðurstöður til þess að mikill meirihluti þess sé ánægt með þann sveigjanleika sem það hefur í starfi.

Starfsmannafélagið Öflungur

Öflungur er starfsmannafélag EFLU á Íslandi og óhætt er að segja að félagsstarf starfsfólks sé afar fjölbreytt. Lögð er áhersla á að viðburðir mæti ólíkum þörfum starfsfólks og að þeir séu fjölskylduvænir. Hlutverk Öflungs er m.a. að vinna að íþrótta-, félags- og menningarmálum starfsfólks og efla samstarf og samvinnu þess. Allt starfsfólk hefur val um hvort það vilji vera í starfsmannafélaginu og er nánast allt starfsfólk EFLU félagar. Mikil gróska var í starfi Öflungs á árinu og boðið var upp á fjölbreytta viðburði og dagskrá fyrir starfsfólk.

Viðburðir fyrir starfsfólk:

  • Embla - Samverudagur EFLU
  • Árshátíð
  • Aðventukvöld
  • Reglulegir viðburðir þar sem leitast er eftir að styðja við stefnu félagsins, til dæmis með því að styrkja tengsl, auka vellíðan og samfélagslega ábyrgð.

Fjölbreyttir viðburðir fyrir starfsfólk

people setting down trees
musicians on stage
three women in a fest
people gathering in a forest
Íslensk náttúra, gulur viti, göngufólk
Group of women gathering with
Fólk á svölum.

Öryggi og áhættumat

Öryggi starfsfólks er haft í fyrirrúmi hjá EFLU og leitast fyrirtækið við að skapa starfsfólki sínu öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Haft er víðtækt samstarf við starfsfólk um hættur, áhættumat, forvarnir og fræðslu. Lögð er áhersla á opin samskipti um vinnuvernd og kallað er eftir ábendingum og tillögum að umbótum. Þá er starfsfólk ávallt hvatt til að gæta að öryggi sínu og annars starfsfólks. Áhættumat og vinnulýsingar hafa verið gerðar fyrir öll helstu störf hjá EFLU, bæði innan skrifstofunnar og vegna vinnu á mismunandi verkstöðum. Allur nauðsynlegur öryggisbúnaður er til staðar fyrir starfsfólk og er hann CE-merktur. Til að auka öryggisvitund og draga úr áhættu er starfsfólki gert að skima fyrir hættum þegar farið er á verkstað, með því að nota snjallforrit sem inniheldur stuttan lista yfir helstu öryggisatriði og viðbúnað.

Maður í öryggisvesti með hjálm á framkvæmdarstað

Öryggisnefndir

Öryggisnefndir eru starfandi á öllum starfsstöðvum EFLU. Í öryggisnefndum sitja annars vegar öryggistrúnaðarmenn sem kosnir eru af starfsfólki og hins vegar öryggisverðir sem valdir eru af EFLU. Helsta hlutverk öryggisnefnda er að vinna að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi í allri starfsemi fyrirtækisins og fylgjast með því að ráðstafanir á þessu sviði séu gerðar og skili tilætluðum árangri. Þær sjá jafnframt um vöktun á öryggisbúnaði, öryggiskerfum á starfsstöðvum og brunaöryggi. Nefndirnar eru mjög virkar og taka þær þátt í öllum helstu ákvörðunum um öryggismál EFLU.

Persónuvernd

EFLU er umhugað um öryggi persónugreinanlegra upplýsinga viðskiptavina og starfsfólks síns og einsetur sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi þeirra gagna sem unnið er með innan fyrirtækisins. EFLA vinnur samkvæmt núgildandi persónuverndarlöggjöf og persónuverndarstefnu.

Þjónustuaðilar í vinnuvernd

EFLA er viðurkenndur þjónustuaðili af hálfu Vinnueftirlitsins og er í samstarfi við Heilsuvernd um veitingu heildstæðrar þjónustu á sviði vinnuverndar. Öllum gildandi lögum og reglum er fylgt í starfsemi EFLU, svo sem lögum um vinnuvernd og almennri löggjöf um vinnumarkaðsmál. Langstærsti hluti starfsfólks EFLU hefur kosið að vera í stéttarfélögum. EFLA lýsir því yfir að fyrirtækið standi alfarið gegn allri nauðungar- og þrælkunarvinnu sem og barnaþrælkun.