Samfélagsleg ábyrgð
Áhersla EFLU á samfélagslega ábyrgð hefur vaxið jafnt og þétt og er nú orðin rauður þráður í stefnumiðun fyrirtækisins.

Global Compact sáttmáli Sameinuðu þjóðanna
EFLA skrifaði undir Global Compact-sáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2015 og skuldbatt sig þannig til að fylgja þeim tíu grundvallarviðmiðum sáttmálans um samfélagslega ábyrgð sem snúa að mannréttindum, vinnumarkaði, umhverfi og baráttu gegn spillingu.
Þessi ársskýrsla inniheldur upplýsingar um árangur fyrirtækisins í samræmi við viðmið Global Compact. Áhersla fyrirtækisins á samfélagslega ábyrgð hefur vaxið jafnt og þétt og er rauður þráður í stefnumiðum fyrirtækisins, sem og áhersluþáttur í þeirri ráðgjöf sem fyrirtækið veitir út á við.
Festa, miðstöð um sjálfbærni
EFLA er aðili að Festu, miðstöð um sjálfbærni, og skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu íslenskra fyrirtækja og stofnana um markmið í loftslagsmálum í nóvember 2015. EFLA skuldbindur sig til að taka þátt í hvatningu um ábyrgð í umhverfismálum heimsins og fylgir loftslagsstefnu sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs.
Nordic Built og Grænni byggð
EFLA var fyrsta verkfræðistofan á Íslandi sem skrifaði undir sáttmála Nordic Built. Sáttmálinn hvetur til þróunar á samkeppnishæfum lausnum í vistvænni mannvirkjagerð. Markmið Nordic Built er að fá byggingariðnaðinn til að sameinast um að nýta sérþekkingu sína til að mæta aukinni eftirspurn eftir vistvænni mannvirkjagerð í heiminum og vera leiðandi í nýsköpun, grænum hagvexti og velferð. EFLA er einnig stofnaðili og þátttakandi í stjórn sem og virkur félagi í félagasamtökum Grænni byggðar, sem er vettvangur um sjálfbæra þróun byggðar með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif frá mannvirkjagerð, rekstri og niðurrifi.
Samfélagssjóður
Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. Umsóknir eru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum valnefndarinnar hverju sinni.
Frá Malaví til Mosó
Tveir ungir drengir frá Malaví, fimmta fátækasta ríki heims, dvelja hjá fósturfjölskyldu í Mosfellsbæ þar sem þeir æfa með meistaraflokki og keppa með 2. flokki Aftureldingar í knattspyrnu. Drengirnir koma frá knattspyrnuakademíunni Ascent Soccer sem kom, sá og sigraði á Rey Cup mótinu í Reykjavík í fyrra. Vinum drengjanna í 2. flokki Aftureldingar er mikið í mun að halda þeim í liðinu fram á haust enda eru þeir flottir leikmenn og góðir félagar. Styrkurinn verður nýttur í uppihald fyrir þessa drengi á meðan dvöl þeirra stendur.
Leikfélag Húsavíkur, til kaupa á saumavélum
Á hverju ári setur Leikfélag Húsavíkur upp metnaðarfulla leiksýningu. Það er hópur sjálfboðaliða sem sér um allan búningasaum og hafa þátttakendur oftar en ekki þurfta að reiða sig á gamlar og þreyttar vélar, eða lagt til sínar eigin. Styrkurinn verður nýttur til kaupa á tveimur saumavélum, einni venjulegri og annarri svokallaðri Overlock.
Bjargráður
Bjargráður skipuleggur fyrirlestra fyrir framhaldsskóla landsins sem eru haldnir af fyrsta árs læknanemum við Háskóla Íslands, sem hafa fengið viðunandi þjálfun í skyndihjálp. Öll vinna í félaginu er sjálfboðaliðastarf og fyrirlestrar eru fluttir framhaldsskólum að kostnaðarlausu. Fyrirlestrarnir eru gerðir af eldri nemum í samráði við lektor og kennslustjóra í bráðalækningum samkvæmt nýjustu klínískum leiðbeiningum. Styrkurinn verður nýttur í helstu útgjöld félagsins sem eru t.a.m. bensínkostnaður vegna fyrirlestra úti á landi, kennslugögn, svo sem dúkkur og annar búnaður og kennsla fagaðila fyrir læknanema svo eitthvað sé nefnt.
Hvernig varð ég til?
Hönnun og prentun á bókinni „Hvernig varð ég til?“ eftir Andreu Björt Ólafsdóttur. Um er að ræða barnabók sem aðstoðar fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til ef fólk fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa við barneignarferlið. Bókin er fyrir samkynja pör, tvíkynja pör og einstaklinga sem eignast börn ein. Bókin er hugsuð sem hjálpartæki og barnabók þannig að barn getur skoðað hana og handfjatlað, en engin slík bók hefur verið gefin út á íslensku áður.
Ungmennafélagið Efling
Styrkur til Ungmennafélagsins Efling sem verður nýttur til að endurnýja keppnisáhöld vegna Meistaramóts Íslands fyrir 11-14 ára í frjálsíþróttum sem haldið verður að Laugum í sumar. Þátttakendur á MÍ koma víðsvegar að af landinu og hefur mótið verið vel sótt. Á síðasta ári voru þátttakendur um 160 talsins og von er á álíka fjölda að Laugum í sumar, styrkurinn kemur því til með að nýtast fjöldanum öllum af ungu frjálsíþróttafólki af öllu landinu.
Keppnisvöllur í frisbígolfi í Selskógi
Verkefnið snýst um að byggja 18 holu frisbígolfkeppnisvöll fyrir lengra komna í Selskógi, sem er helsta útivistarsvæði Egilsstaða. Þá verða settir upp styttri teigar fyrir byrjendur og fjölskyldur. Vöntun er á keppnisvelli í frisbígolfi á stórum hluta landsins en flesta slíka velli má finna á og í kringum höfuðborgarsvæðið og á Akureyri. Markmið nýs frisbígolfvallar í Selskógir er að koma til móts við lengra komna spilara í frisbígolfi á svæðinu og veita áhugasömum um íþróttina tækifæri til að spreyta sig.
Hollvinafélag Kvíabekkjarkirkju í Ólafsfirði
Styrkurinn verður nýttur til uppbyggingar á einum merkasta sögustað Ólafsfjarðar, Kvíabekkjarkirkju. Kvíabekkjarkirkja stendur á landnámsjörð Ólafs Bekks Karlssonar, Kvíabekk í Ólafsfirði. Fyrirhugaðar framkvæmdir næsta árs er að ljúka klæðningu kirkjunnar og endurnýja þakið og turninn á kirkjunni. Með uppbyggingu og þeim upplýsingum á skiltum sem þar verður komið fyrir er vakin athygli á áhugaverðum þætti í menningarsögu Ólafsfjarðar. Með þessari framkvæmd standa vonir til að bjarga menningarverðmætum og búa til umgjörð til að miðla sögu staðarins til komandi kynslóða.
Get together
„Get together“ er verkefni þar sem viðburðir eru haldnir vikulega á bókasöfnum Hafnarfjarðar og Kópavogs fyrir flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, efla virkni og skapa jákvæðar upplifanir fyrir börn og fullorðna. Á opnum húsum fá þátttakendur að njóta veitinga, taka þátt í handverki, föndri og öðrum þroskandi viðburðum. Börn flóttafólks, sem oft búa við einangrun og takmörkuð tækifæri til þroska vegna langs biðtíma, fá þar örvun og leikfélaga. Að meðaltali mæta 30 manns vikulega, þar af helmingur börn undir sex ára aldri. Styrkur til verkefnisins verður nýttur til að fjármagna efni, veitingar og leikföng og stuðlar verkefnið að sterkari tengslum flóttafólks við íslenskt samfélag.
Fjölskylduhjálp Íslands
Fjölskylduhjálp Íslands kaupir matvæli fyrir skjólstæðinga sína fyrir jól. Samtökin, sem voru stofnuð árið 2003 og urðu 21 árs í september, hafa að markmiði að styðja þá sem minna mega sín. Í hverjum mánuði fá um 2.500 fjölskyldur aðstoð frá F.Í. en síðastliðið ár úthlutuðu samtökin 29.000 matargjöfum. Skjólstæðingar eru meðal annars öryrkjar, einstæðir foreldrar, eldri borgarar og heimilislaust fólk. Úthlutun fer fram vikulega í Iðufelli og Reykjanesbæ. Markmið FÍ. er að hjálpa sem flestum að njóta hátíðanna.
Skautafélag Akureyrar
Skautafélag Akureyrar ætlar að kaupa fleiri skauta til láns fyrir byrjendur í listskautum. Félagið lánar byrjendum skauta í upphafi iðkunar til að draga úr kostnaði fyrir fjölskyldur, sérstaklega þær sem standa fjárhagslega verr. Vegna aukinnar þátttöku hefur núverandi búnaður ekki dugað til að mæta eftirspurn. Markmið verkefnisins er að gera öllum börnum kleift að stunda íþróttina á jafnræðisgrundvelli og gefa þeim tækifæri til að prófa listskauta áður en þau skuldbinda sig. Verkefnið mun gagnast börnum sem koma á námskeið eða hefja æfingar hjá listskautadeild félagsins um ókomin ár.
RU Racing
RU Racing er kappaksturslið Háskólans í Reykjavík sem tekur þátt í Formula Student, verk- og viðskiptafræðikeppni á milli evrópskra tækniháskóla. Nemendur sjá um að hanna og smíða formúlubíl frá grunni og keppa í greinum eins og verkfræðilegri hönnun, viðskiptamódeli, kostnaðargreiningu og framleiðslu. Verkefnið sameinar nemendur frá ólíkum sviðum sem nýta þekkingu sína til að leysa flóknar áskoranir. Styrkurinn nýtist til að fjármagna smíði nýs bíls, kaupa íhluti, grindarefni, dekk og öryggisbúnað. Með þátttöku RU Racing í keppnum eykst samstarf við íslensk fyrirtæki og nemendur öðlast verðmæta reynslu.
Pangea
Pangea, stærðfræðikeppni fyrir nemendur í 8. og 9. bekk, hefur það að markmiði að efla áhuga nemenda á stærðfræði og veita öllum jafnt aðgengi að keppni, óháð kyni, búsetu eða uppruna. Með fjölbreyttum verkefnum, mismunandi erfiðleikastigum og háu hlutfalli nemenda sem komast áfram í aðrar umferðir, byggir Pangea sjálfstraust nemenda sem annars gætu talið stærðfræði óyfirstíganlega. Markmið Pangea er að vekja áhuga á stærðfræði, styðja efnilega nemendur og tryggja jöfn tækifæri fyrir öll börn á Íslandi til að glíma við stærðfræði á sínum forsendum. Verkefnið hefur vaxið jafnt og þétt síðan 2016 og síðasta vor tóku um 4800 nemendur úr 59 skólum þátt í keppninni. Það stuðlar að betri stærðfræðikunnáttu sem er mikilvæg fyrir aukið tæknilæsi og framfarir samfélagsins.
Fagrir tónar í Firðinum
Verkefnið Fagrir tónar í Firðinum býður upp á tónleika fyrir eldri borgara í Hafnarfjarðarbæ, þar sem píanó- og flautuleikarar flytja efnisskrá sem samsett er úr klassískum perlum og íslenskum þjóðlögum. Markmið verkefnisins er að bæta vellíðan eldri borgara, með því að bjóða þeim upp á tónlistarflutning. Sýnt hefur verið fram á að það að upplifa tónlist auki vellíðan, minnki þunglyndi og kvíða, og auki félagslega tengingu, sérstaklega hjá þeim sem upplifa einmanaleika. Rannsóknir sýna að tónlist getur einnig haft jákvæð áhrif á andlega og líkamlega vellíðan aldraðra, sem gerir þessa tónleikaseríu mikilvæga í því samhengi.
Votlendissjóður
EFLA er einn af stofnaðilum Votlendissjóðs og er þátttakandi í stjórn sjóðsins. EFLA hefur meðal annars tekið þátt í að móta aðferðafræðina við mat á árangri endurheimtar votlendis og útfærslu vöktunar.
Háskólasamfélagið
EFLA leggur mikið upp úr góðum tengslum við háskólasamfélagið, bæði með því að leggja til starfsfólk til að sinna hlutverki leiðbeinenda í lokaverkefnum og því að sinna stundakennslu í háskólunum. EFLA hefur gert samstarfssamning við háskólana og tekur við nemendum í starfsþjálfun til að sinna ákveðnum verkefnum.
Árlega sækir EFLA um styrki í Nýsköpunarsjóð námsmanna og á síðasta ári hlutu fjögur verkefni brautargengi úr sjóðnum. EFLA leggur áherslu á að laða að efnilega háskólanema og mögulegt framtíðarstarfsfólk til starfa og síðasta sumar voru 35 háskólanemar ráðnir til fyrirtækisins.