Viðskiptahættir

Skrifstofurými, græn planta, glerveggir og viðarpanell. Gluggi aftast á myndinni

Mannréttindi

EFLA fylgir stefnu um sanngjarna samkeppni. Þar kemur fram að EFLA styður og virðir mannréttindi í samræmi við mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. EFLA lítur svo á að mannréttindi snerti alla og tekur ekki þátt í mannréttindabrotum annarra enda er sérhver manneskja borin frjáls og jöfn öðrum að virðingu og réttindum, líkt og fram kemur í yfirlýsingunni. Í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna er einnig að finna ákvæði um helstu mannréttindi, svo sem réttinn til lífs, frelsis og mannhelgi, bann við pyntingum, þrælahaldi og mismunun, réttinn til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu og rétt til menntunar og heilbrigðis. EFLA heldur þessi gildi í heiðri og þannig virðir fyrirtækið réttindi og reisn starfsfólks og viðskiptavina sem og samfélagsins alls.

Gegn spillingu

Í öllu starfi EFLU er leitast við að koma ávallt fram af sanngirni og heilindum, hvort sem er í samskiptum við viðskiptavini, starfsfólk eða aðra þá sem fyrirtækið hefur samskipti við. Þannig eru mútur eða spilling af einhverju tagi ekki liðin, hvorki beint né óbeint, í samræmi við stefnu EFLU um mútur og spillingu. Þá er starfsfólki með öllu óheimilt að bjóða, lofa, gefa, falast eftir, krefjast eða þiggja, hvort sem er með beinum eða óbeinum hætti, neitt sem talist getur til óeðlilegra hagsbóta fyrir þá sjálfa eða EFLU. Öllu starfsfólki er gert að gæta þess að athafnir þeirra og hagsmunir rekist ekki á við ábyrgð þeirra hjá EFLU. Einnig er mikilvægt að starfsfólk reyni eftir fremsta megni að forðast aðstæður sem hægt væri að túlka sem hagsmunaárekstur.

Trúnaðarupplýsingar

Starfsfólk EFLU leggur sig fram við að meðhöndla trúnaðarupplýsingar af virðingu og varkárni í samræmi við persónuverndarstefnu fyrirtækisins. EFLA stundar fagleg vinnubrögð í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila ásamt því að fylgja gæðastöðlum fyrirtækisins í öruggri vistun og meðhöndlun trúnaðargagna. Starfsfólki ber einnig að sýna viðeigandi aðgát þegar það ræðir trúnaðarmál við samstarfsfólk, samstarfsaðila og viðskiptavini.

Samstarf við birgja og þjónustuaðila

Í samstarfi við birgja og þjónustuaðila leitast EFLA við að ná gagnkvæmum ávinningi en jafnframt að lágmarka áhættu. Slíkt samstarf er áhættugreint og þeir aðilar sem geta haft veruleg bein áhrif á þjónustu EFLU, orðspor og möguleika á að ná settum markmiðum eru rýndir sérstaklega. Samningar eru gerðir um samstarfið og árangur metinn reglulega.

Regluverk

Starfsfólk EFLU er skuldbundið til að fara eftir lögum og reglugerðum á viðeigandi viðskiptasvæðum fyrirtækisins. Starfsfólk skal þekkja viðeigandi lög og ætlast er til þess að allir samstarfsaðilar starfi einnig samkvæmt lagalegum kröfum og stöðlum um ábyrga og heilbrigða viðskiptahætti. Starfsfólk EFLU skal fara að gildandi samkeppnislögum í hverju landi þar sem fyrirtækið er í viðskiptum.

Flokkunarreglugerð Evrópusambandsins (Taxonomy)

Flokkunarreglugerð ESB tók gildi á Íslandi 1. júní 2023 með lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

Tilgangur reglugerðarinnar er að skilgreina hvaða atvinnustarfsemi telst vera umhverfislega sjálfbær út frá tæknilegum matsviðmiðum sem koma fram í framseldri reglugerð ESB 2021/2139 og á að stuðla að gagnsæi í sjálfbærniupplýsingagjöf. Til þess að fyrirtæki geti talist umhverfislega sjálfbær í skilningi reglugerðarinnar þurfa þau að uppfylla viðmið fyrir umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi skv. 3. gr. reglugerðarinnar. Í fyrsta lagi þarf atvinnustarfsemin að stuðla verulega að einu eða fleiri umhverfismarkmiðum og á sama tíma má hún ekki skaða önnur markmið. Hún þarf að vera stunduð í samræmi við lágmarksverndarráðstafanir og að lokum að hlíta tæknilegum matsviðmiðum.

Umhverfismarkmiðin eru sex:

  1. Mildun loftslagsbreytinga
  2. Aðlögun að loftslagsbreytingum
  3. Sjálfbær notkun og verndun vatns- og sjávarauðlinda
  4. Umskipti yfir í hringrásarhagkerfi
  5. Mengunarvarnir og eftirlit með mengun
  6. Vernd og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa

Tæknileg matsviðmið fyrir mildun og aðlögun loftslagsbreytinga hafa verið innleidd með framseldri reglugerð ESB 2021/2139 og atvinnustarfsemi sem þar er tiltekin fellur undir upplýsingaskyldu á Íslandi. Framseld reglugerð ESB 2023/2486 um önnur umhverfismarkmið og framseld reglugerð ESB 2023/2485 um uppfærslu á loftslagsmarkmiðum tóku gildi á Íslandi 1. janúar 2025. Þau viðmið eiga því ekki við um rekstrarárið 2024.

Til þess að starfsemi teljist samræmd, og þar með að hún uppfylli skilyrði flokkunarreglugerðarinnar um að vera umhverfislega sjálfbær, þarf hún annars vegar að fela í sér verulegt framlag (e. Substantial contribution) og hins vegar að valda ekki umtalsverðu tjóni (e. do no significant harm), auk þess að uppfylla lágmarksverndarráðstafanir. Kröfurnar eru ítarlegar og ljóst að ef fyrirtæki vilja lýsa því yfir með góðri samvisku að markmiðin séu uppfyllt, og þannig að slíkt standist skoðun, þarf mikil grunnvinna að hafa átt sér stað.

Verulegt framlag til umhverfismarkmiða felur í sér að starfsemin uppfyllir ákveðin sértæk tæknileg viðmið sem eiga við um allavega eitt umhverfismarkmið. Um leið má starfsemin ekki valda umtalsverðu tjóni á öðrum umhverfismarkmiðum.

Gerð er krafa um að fyrirtæki birti hlutfall veltu, fjárfestingagjalda og rekstrargjalda fyrir nýliðið rekstrartímabil á hæfri starfsemi, þ.e. starfsemi sem fellur undir flokkunarreglugerðina. Auk þess skal fyrirtækið birta sömu lykilmælikvarða fyrir starfsemi sem uppfyllir öll viðmið reglugerðarinnar og telst vera samræmd starfsemi eða umhverfislega sjálfbær starfsemi.

EFLA hf. sem stór samstæða í skilningi ársreikningalaga fellur undir flokkunarreglugerðina. Kjarnastarfsemi EFLU fellur undir M71.12.1, starfsemi verkfræðinga, skv. ÍSAT 2008 atvinnugreinaflokkun. Árið 2024 var unnið að því að innleiða verkferla innan fyrirtækisins til að uppfylla lágmarksráðstafanir flokkunarreglugerðarinnar, sem fylgja viðmiðunarreglum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, leiðbeinandi meginreglum Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi auk átta grundvallarsamþykkta í yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO). Vettvangur um sjálfbær fjármál hefur skilgreint kjarnaviðfangsefni út frá þessum kröfum: mannréttindi, spilling og mútur, skattlagning og sanngjörn samkeppni. Nú þegar hafa mörg af þessum viðmiðum verið innleidd í íslensk lög. EFLA styður og virðir mannréttindi í samræmi við mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna auk þess að viðhafa sanngjarna viðskiptahætti í allri starfsemi fyrirtækisins og aðfangakeðjum. EFLA starfar m.a. samkvæmt skattastefnu, stefnu um mútur og spillingu, stefnu um sanngjarna samkeppni, mannauðsstefnu og jafnréttis- og jafnlaunastefnu.

EFLA er þekkingarfyrirtæki, sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. Starfsfólk EFLU vinnur árlega að mörg þúsund verkefnum og því mjög mikil grunnvinna sem þarf að fara fram til að ákvarða þau verkefni sem annars vegar falla undir flokkunarreglugerðina og hins vegar verkefni sem teljast samræmast viðkomandi tækniviðmiðum. EFLA er að hefja vegferð við innleiðingu flokkunarreglugerðarinnar og birtir hér í fyrsta skipti upplýsingar um hlutfall veltu, fjárfestinga og rekstrargjalda fyrir þá starfsemi samstæðunnar sem flokkunarkerfið nær yfir, auk hlutfalls umhverfissjálfbærrar starfsemi, fyrir rekstrarárið 2024. Mjög takmarkaður hluti starfseminnar fellur undir núverandi flokkunarreglugerð sem er í stöðugri þróun. Ákveðið var að greina verkefni EFLU sem unnin voru árið 2024, með veltu hærri en 5 milljónir, m.t.t. þess hvort þau falli undir flokkunarreglugerðina. Niðurstaðan er sú að um 2,9 % af veltu ársins 2024, í verkefnum með veltu meira en 5 milljónir, fellur undir flokkunarreglugerðina. Engin rekstrar- né fjárfestingargjöld EFLU árið 2024 falla undir flokkunarreglugerðina. Að þessu sinni var ekki lagt mat á hvort verkefnin samræmist tækniviðmiðum flokkunarreglugerðarinnar, þ.e. að verkefnin teljist umhverfissjálfbær skv. viðmiðum flokkunarreglugerðarinnar.

Hér á eftir er lýsing á þeim flokkum reglugerðarinnar sem verkefni EFLU árið 2024, með veltu yfir 5 milljónir, falla undir.

Verkefni sem hafa verulegt framlag til mildunar loftslagsbreytinga:

4.5 Raforkuframleiðsla úr vatnsorku

Hér er um að ræða verkefni er tengjast hönnun á byggingum sem tengjast raforkuframleiðslu. Dæmi um slíkt verkefni hjá EFLU er Gilsárvirkjun á Héraði, þar sem EFLA sér um hönnun á stöðvarhúsi, stíflu og fleira.

4.25 Framleiðsla á varma/kælingu úr glatvarma

Hér er um að ræða verkefni sem tengjast nýtingu á glatvarma til orkunotkunar. Dæmi um slíkt verkefni hjá EFLU er nýting glatvarma frá TDK sem hitagjafa hjá Norðurorku. Hlutverk EFLU var að hanna lagnir og tengingar við stofnlagnir Norðurorku og kælikerfi TDK, auk þess að aðstoða við innanhússhönnun TDK (varmaskipti, dælur og lagnir).

5.2. Endurnýjun vatnsöflunar-, vatnshreinsi- og vatnsveitukerfa

Hér er um að ræða verkefni er snerta hönnun vegna endurnýjunar á vatnsöflunar-, vatnshreinsi og vatnsveitukerfum, svo sem dælustöðvar, heitavatnslagnir og dreifilagnir. Dæmi um slíkt verkefni hjá EFLU er endurnýjun á hitaveitu við Kleppsmýrarveg.

5.4 Endurnýjun skólpsöfnunar- og -hreinsunarkerfa

Hér er um að ræða verkefni sem snerta hönnun á endurnýjun á skólpsöfnunar- og hreinsikerfum. Dæmi er endurnýjun á þrepasíum og þvottapressum í hreinsistöð fráveitu við Ánanaust í Reykjavík.

6.13 Grunnvirki fyrir ferlimál einstaklinga, nytjahjólaflutningastjórnun

Hér er um að ræða verkefni er snerta göngu- og hjólastíga fyrir almenning. Dæmi um verkefni er verkhönnun á göngubrú yfir Glerá við Hörgárbraut á Akureyri.

6.15 Grunnvirki sem gera flutninga á vegum og almenningssamgöngur með litla losun kolefna möguleg

Hér er um að ræða verkefni er tengjast vegum og almenningssamgöngum fyrir ökutæki með litla losun kolefna. Dæmi um verkefni hjá EFLU er forhönnun og útboðshönnun á Fossvogsbrúnni, sem er hluti af Borgarlínu.

9.3 Sérfræðiþjónusta tengd orkunýtingu bygginga

Um er að ræða verkefni þar sem áhersla er á að hanna byggingar á þann hátt að orkunýting þeirra er betri en lágmarkskröfur um orkunýtingu sem koma fram í byggingarreglugerð. Dæmi um slíkt eru byggingar sem hannaðar eru og fara í gegnum vottunarferli BREEAM eða Svansins. Grensádeild, endurhæfingadeild LSH, er dæmi um slíkt verkefni.

Verkefni sem hafa verulegt framlag til aðlögunar á loftslagsbreytingum

9.1 Verkfræðistarfsemi og tengd tæknileg ráðgjöf sem miðast við aðlögun með loftslagsbreytingum

Um er að ræða verkefni sem gera annarri starfsemi kleift að stuðla að aðlögun að loftslagsbreytingum. Dæmi um slík verkefni eru ofanflóðavarnir vegna hættu á snjóflóðum eða skriðuföllum.