Loftræsihönnun

Loftræsing, Loftræsting, Loftræstihönnun, Loftræsikerfi, Loftræstikerfi, Loftræsilausnir, Innivist

EFLA er leiðandi ráðgjafi í hönnun og eftirliti loftræsikerfa í mannvirkjum af öllum stærðum og gerðum.


Ráðgjöfin felur meðal annars í sér gerð loftgæðalíkana á frumstigum hönnunar til ákvarðanatöku á loftræsilausnum og gerð kostnaðar- og gæðamats á mismunandi lausnum.

Tengiliður

Við leggjum mikla áherslu á vandaðar virknilýsingar til að tryggja að virkni og rekstur kerfa verði sem hagkvæmust. EFLA býður jafnframt upp á þarfagreiningu, ráðgjöf og hönnun vegna úrbóta og stækkunar á eldri loftræsikerfum. 

Starfsfólk EFLU býr yfir víðtækri reynslu í loftræsihönnun í byggingum, samgöngumannvirkjum og iðnaði í ólíkum greinum eins og úr framleiðslu, orkumálum og sjávarútvegi.

Afköst, vellíðan og loftgæði

Hitastig og loftgæði í byggingum hafa áhrif á afköst, vellíðan og heilsu notenda. Með góðri ráðgjöf og hönnun má ná fram endingarbetri loftræsikerfum, lægri rekstrarkostnaði og betri loftgæðum og varmavist í byggingum.

Á meðal þjónustusviða eru

  • Loftgæðalíkön og ráðgjöf fyrir innivist
  • Loftræsikerfi fyrir byggingar
  • Loftræsikerfi fyrir iðnað
  • Virknilýsingar fyrir loftræsikerfi
  • Gagnaver
  • Gagnaveitur

Tengd þjónusta


Var efnið hjálplegt? Nei