Samfélagsleg ábyrgð

Áhersla EFLU á samfélagslega ábyrgð hefur vaxið jafnt og þétt og er nú orðin rauður þráður í stefnumiðun fyrirtækisins.

Grænn gróður, tvær plöntur í forgrunni og strá, laufblöð úr fókusi í bakgrunni

Global Compact sáttmáli Sameinuðu þjóðanna

EFLA skrifaði undir Global Compact sáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2015 og skuldbatt sig þannig til að fylgja þeim tíu grundvallarviðmiðum sáttmálans um samfélagslega ábyrgð sem snúa að mannréttindum, vinnumarkaði, umhverfi og baráttu gegn spillingu.

Í þessari áttundu samfélagsskýrslu EFLU er tekinn saman árangur fyrirtækisins í samræmi við viðmið Global Compact. Áhersla fyrirtækisins á samfélagslega ábyrgð sína hefur vaxið jafnt og þétt og er hún nú orðin rauður þráður í stefnumiðum fyrirtækisins, sem og áhersluþáttur í þeirri ráðgjöf sem fyrirtækið veitir út á við.

Festa, miðstöð um sjálfbærni

EFLA er aðili að Festu, miðstöð um sjálfbærni, og var eitt af 103 íslenskum fyrirtækjum sem skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu fyrirtækja og stofnana um markmið í loftslagsmálum í nóvember 2015. EFLA skuldbindur sig til að taka þátt í hvatningu um ábyrgð í umhverfismálum heimsins og fylgir loftslagsstefnu sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs. Starfsfólk EFLU tekur þátt í vinnu sérfræðihóps Festu og leggur fram vinnu til að uppfæra Loftslagsmæli Festu.

Nordic Built og Grænni byggð

EFLA var fyrsta verkfræðistofan á Íslandi sem skrifaði undir sáttmála Nordic Built. Sáttmálinn hvetur til þróunar á samkeppnishæfum lausnum í vistvænni mannvirkjagerð. Markmið Nordic Built er að fá byggingariðnaðinn til að sameinast um að nýta sérþekkingu sína til að mæta aukinni eftirspurn eftir vistvænni mannvirkjagerð í heiminum og vera leiðandi í nýsköpun, grænum hagvexti og velferð. EFLA er einnig stofnaðili og þátttakandi í stjórn sem og virkur félagi í félagasamtökum Grænni byggðar, sem er vettvangur um sjálfbæra þróun byggðar með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif frá mannvirkjagerð, rekstri og niðurrifi.

Samfélagssjóður

Samfélagssjóður EFLU veitir árlega styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. Markmiðið er að styðja framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Umsóknir eru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum valnefndarinnar hverju sinni.

Árið 2023 voru veittir sex styrkir úr sjóðnum. Verkefnin voru af fjölbreyttum toga og flokkuðust til góðgerðar- og félagsmála, menntamála, íþrótta- og æskulýðsmála og menningu og lista. Hægt er að lesa nánar um verkefni sem hlutu styrki hér fyrir neðan.

Votlendissjóður

EFLA er einn af stofnaðilum Votlendissjóðs og er þátttakandi í stjórn sjóðsins. EFLA hefur meðal annars tekið þátt í að móta aðferðafræðina við mat á árangri endurheimtar votlendis og útfærslu vöktunar.

Háskólasamfélagið

EFLA leggur mikið upp úr góðum tengslum við háskólasamfélagið, bæði með því að leggja til starfsfólk til að sinna hlutverki leiðbeinanda í lokaverkefnum og því að sinna stundakennslu í háskólunum. Sem fulltrúi atvinnulífsins hefur EFLA á árinu tekið virkan þátt í endurmati Háskóla Íslands á rannsóknarstefnu á Verkfræði- og náttúruvísindasviði sem og pallborðsumræðu á ráðstefnu um gæði meistaranáms háskólanna á Íslandi: „Annual quality board conference on enhancing qualilty of masters studies“. EFLA hefur gert samstarfssamning við háskólana og tekur við nemendum í starfsþjálfun til að sinna ákveðnum verkefnum.

Árlega sækir EFLA um styrki í Nýsköpunarsjóð námsmanna og á síðasta ári hlutu fjögur verkefni brautargengi úr sjóðnum. EFLA leggur áherslu á að laða að efnilega háskólanema og mögulegt framtíðarstarfsfólk til starfa og síðasta sumar voru 45 háskólanemar ráðnir til fyrirtækisins.