Beint í efni

Annáll 2025 | Hönnun, innviðir og orkuspár

2. janúar 2026

Fréttir
Þrír manneskjur á uppstillri mynd.

Á vormánuðum var kastljósinu beint að hönnun, innviðum og ábyrgð gagnvart framtíðinni. Sérfræðingar EFLU tóku virkan þátt í umræðum um hringrásarhagkerfið og lögðu sitt af mörkum í alþjóðlegum verkefnum sem snúa að vernd viðkvæmra vistkerfa.

Málþing, ráðstefnur og vinnustofur einkenndu tímabilið, þar sem sérfræðingar EFLU deildu þekkingu sinni og ræddu framtíðarsýn í orku-, umhverfis- og mannvirkjamálum. Auk þess var úthlutað úr Samfélagssjóði EFLU þar sem stutt var við fræðsluverkefni fyrir ungt fólk.

Hönnun, umhverfisábyrgð og nýsköpun í apríl

Hringrásarveggurinn var kynntur á HönnunarMars. Hann er skapandi útfærsla sem vekur athygli á endurnýtingu og sjálfbærni í byggingarefni. Sérfræðingar EFLU stóðu fyrir greiningu á kolefnisspori ólíkra drykkjarumbúða sem gaf framleiðanda skýrari mynd af umhverfisáhrifum umbúða sinna. Á Degi verkfræðinnar ræddi sérfræðingur EFLU um mikilvægi þess að forðast að verða „kynslóðin sem klúðraði“ sem var áminning um það hvernig ákvarðanir í dag móta framtíðina.

Á sama tíma tók EFLA þátt í alþjóðlegu verkefni um hreinsun skólps á Norðurslóðum. Þar leggja sérfræðingar sitt af mörkum til að vernda viðkvæm vistkerfi í norðri. Verkefni tengd innviðum voru einnig í brennidepli, meðal annars vegagerð á nýju hrauni, sem krefst nákvæmrar verkfræðihönnunar og öryggisúttektar til að tryggja samgöngur í krefjandi landslagi.

Veggur hlaðinn með glerflöskum.

Hringrásarveggurinn Skapandi útfærsla sem vekur athygli á endurnýtingu og sjálfbærni í byggingarefni.

Samtal, styrkir og samfélagsábyrgð í maí

Maí hófst með húsfylli á málþingi á vegum EFLU, þar sem sérfræðingar og hagsmunaaðilar komu saman til að ræða nýjustu lausnir og framtíðarsýn í orku- og umhverfismálum. Umræðurnar endurspegluðu mikilvægi samvinnu í greininni og áherslu á sjálfbærni. Samfélagssjóður EFLU veitti styrki til sjö verkefna sem snérust um menntun, nýsköpun og samfélagslegar umbætur.

EFLA tók virkan þátt á Samorkuþingi 2025 með öflugu framlagi í pallborðum og erindum, þar sem rætt var um orkuskipti, innviði og nýja tækni sem mótar framtíðina. Fyrirtækið sýndi einnig samfélagslega ábyrgð með því að styðja stærðfræðikeppnina Pangea, sem hvetur ungt fólk til að efla hæfni sína í stærðfræði og vísindum.

Fólk ræðir saman á sýningu.

Samorkuþing Helga Jóhanna Bjarnadóttir og Snævarr Örn Georgsson ræða við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Innviðir, öryggi og sjálfbærni í júní

Í byrjun sumars var tekið stórt skref í samgöngumálum þegar bygging Fossvogsbrúar fór í útboð. EFLA hefur komið að hönnun og ráðgjöf í verkefninu sem mun tengja borgarhluta með öruggari og vistvænni samgöngum. Á sama tíma gaf EFLA út nýja útgáfu skýrslu um raforkuverð á Íslandi, þar sem þróun raforkuverðs til heimila var greind og sett í samhengi við orkuskipti og markaðsþróun.

Starfsfólk EFLU tók virkan þátt í Umhverfisráðstefnu Austurlands, þar sem áhersla var lögð á sjálfbærni og nýtingu auðlinda. Fyrirtækið fékk einnig vottun um upplýsingaöryggi, ISO 27001, og er fyrsta þekkingarfyrirtækið hérlendis sem hlýtur slíka vottun. EFLA kom að hönnun viðleguaðstöðu fyrir Laxey, sem styrkir innviði sjávarútvegsins, og hélt vinnustofu um viðhald bygginga og nýtingu byggingarefna. Loks var litið fram á veginn með verkefninu „Byggjum til framtíðar“ sem sameinar nýsköpun, öryggi og sjálfbærni í byggingum og innviðum.

Í næsta hluta segjum við frá því sem gerðist í júlí, ágúst og september á árinu sem er að líða.

Kona heldur fyrirlestur.

Umhverfisráðstefna Austurlands Alexandra Kjeld hélt erindi á ráðstefnunni.

Annáll 2025 | Hönnun, innviðir og orkuspár