Síðustu mánuðir ársins einkenndust af samfélagsábyrgð, samstarfi og faglegum árangri. Í október var lögð áhersla á jafnrétti, fræðslu og heilsu. Í nóvember var samstarf og nýsköpun í brennidepli, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Í desember miðluðu sérfræðingar EFLU þekkingu sinni á fjölbreyttum sviðum.
Sérfræðingar fyrirtækisins komu víða að faglegum verkefnum, rannsóknum og ráðstefnum og Samfélagssjóður EFLU úthlutaði styrkjum til fjölbreyttra verkefna. Á þessum lokakafla ársins voru fagleg forysta, ábyrgð gagnvart samfélaginu og stöðug leit að betri lausnum til framtíðar áberandi.
Jafnrétti og samfélagsábyrgð í október
EFLA stóð fyrir Foreldramorgni fyrir starfsfólk í október þar sem lögð var áhersla á stuðning fyrir unga foreldra í starfsmannahópnum. Þá var stórt skref stigið í jafnréttismálum þegar EFLA hlaut jafnréttisvottun FKA árið 2025 auk þess sem konur í hópi starfsfólks voru hvattar til að leggja niður störf á Kvennafrídeginum. Á Bleika deginum var fræðsla í forgrunni til að styðja við vitundarvakningu um heilbrigðismál.
Fyrirtækið tók einnig þátt í umræðu um lærdóm af loftslagsaðgerðum en hjá EFLU er lögð áhersla á að læra af reynslu, bæði þegar markmiðum er náð og þegar aðgerðir skila ekki tilætluðum árangri.

Samstarf og nýsköpun í nóvember
Í nóvember sameinuðu EFLA og Klappir krafta sína í samstarfi sem styrkir lausnir í umhverfis- og loftslagsmálum. Sérfræðingur EFLU tók einnig þátt í morgunkaffi Klappa, þar sem rætt var um nýjar leiðir í sjálfbærni.
Auk þess hélt EFLA áfram að miðla þekkingu á alþjóðavettvangi en sérfræðingar EFLU tóku þátt á alþjóðlegu ráðstefnunni Hydro sem fór fram í Grikklandi. Þá stóð EFLA fyrir vinnustofu um álagsdreifingu umferðar þar sem mögulegar aðgerðir til að dreifa álagi á höfuðborgarsvæðinu voru ræddar.

Framúrskarandi ár og fagleg forysta í desember
Árið endaði með viðurkenningu þegar EFLA var valið framúrskarandi fyrirtæki 16. árið í röð. Starfsfólk EFLU sá um hljóðhönnun leikskólans Öldunnar á Hvolsvelli sem hlaut íslensku hljóðvistarverðlaunin. Þá voru kynntar niðurstöður úr tilraunum með sementsefjustyrkt malbiksslitlag en fyrirtækið hefur í samstarfi við fleiri hafið rannsóknarverkefni þar sem slíkt malbiksslitlag er prófað í fyrsta sinn á Íslandi.
Sérfræðingar miðluðu þekkingu á ráðstefnum, meðal annars um framtíð á Bakka, auk þess sem greining á myglusýnum og hermun á vindafari á Kjalarnesi voru í brennidepli. Loks hlutu níu fjölbreytt verkefni styrki úr Samfélagssjóði EFLU í síðari úthlutun ársins 2025.
Þar með lýkur umfjöllun um árið 2025 hjá EFLU sem hefur verið gjöfult og fullt af spennandi áskorunum. EFLA tekur fagnandi á móti árinu 2026 og hlakkar til að takast á við ný og fjölbreytt viðfangsefni.

